Svar:
Við leggjum mikið upp úr því að viðskiptavinir hafi greiðan aðgang að upplýsingum. Góður aðgangur að ráðgjöfum og heimabanka auk reglulegra samskipta eru helstu þættir í upplýsingagjöf. Að auki höldum við reglulega fundi fyrir fjárfesta sem við köllum „Föstudagur til fjár“ þar sem stiklað er á því helsta sem er að gerast á markaðnum.
Svar:
Einn af lykilþáttum í þjónustu Auðar er að geta veitt óháða ráðgjöf þar sem Auður rekur ekki eigin verðbréfasjóði. Við getum fjárfest hjá öllum helstu fjármálafyrirtækjum landsins og getum valið þann kost sem okkur þykir vænstur á hverjum tíma. Auður Capital stundar ekki stöðutöku á markaði, sem þýðir að Auður stendur ekki í kaupum og sölum á hlutabréfum fyrir eigin reikning. Þetta kemur í veg fyrir mögulega árekstra milli hagsmuna fyrirtækisins og hagsmuna viðskiptavina. Að lokum má nefna að félagið er í meirihluta eigu stofnenda og starfsmanna en að öðru leyti í dreifðri eignaraðild. Við munum ekki láta eigin fjárhagslegan ávinning og/eða hagsmunatengsl koma í veg fyrir að ráðgjöf okkar sé óháð.
Svar:
Auður er skuldlaust fyrirtæki. Sterk eiginfjárstaða okkar gerir það að verkum að við getum einbeitt okkur að vexti fyrirtækisins en þurfum ekki að standa í björgunaraðgerðum. Rekstur félagsins fyrstu tvö árin hefur gengið vel og komum við viðskiptavinum okkar í gengum erfiða tíma án þess að þeir yrðu fyrir tjóni og höfuðstóll eigna óx með ágætum. Við fjárfestum til langs tíma og erum áhættumeðvituð í okkar fjárfestingum. Ábyrgð okkar er víðtæk, gagnvart viðskiptavinum okkar, samfélagi og umhverfi.
Svar:
Það er mikilvægt að gott samband skapist milli viðskiptavinar og ráðgjafa, við sníðum tíðni samskipta við ráðgjafa eftir þörfum hvers og eins. Við leggjum áherslu á að viðskiptavinir okkar hafi sem bestan skilning og upplýsingar um þau viðskipti sem eru framkvæmd. Því teljum við mikilvægt að vera í virkum og góðum tengslum við viðskiptavini okkar og um leið að byggja upp traust viðskiptasamband.