Fyrirsagnalisti
Svar:
Eignastýringarþjónusta kallast það þegar fjármálafyrirtæki tekur að sér að stýra verðbréfasafni viðskiptavina samkvæmt fyrirfram ákveðinni fjárfestingastefnu. Þá er fjárfest fyrir þeirra hönd ýmist í sjóðum eða einstaka verðbréfum. Fjármálaráðgjafar Auðar sjá um að fylgjast með tækifærum og fjárfestingarkostum og nýta sérþekkingu sína til að leitast við að ná sem bestri langtíma ávöxtun fyrir viðskiptavininn. Stýring eignasafna getur verið tímafrek og krefst mikillar þekkingar, því er það skynsamur kostur fyrir viðskiptavini að nýta sér eignastýringarþjónustu einkum ef eignasafn er umtalsvert.
Svar:
Viðskiptavinir
SpariAuðar geta bætt inn á eignasafn sitt með mánaðarlegum greiðslum. Lágmarks greiðsla er 10.000 kr.
FramtíðarAuður- séreign er þjónusta við þá sem vilja byggja upp séreignarsparnað eða viðbótarlífeyrissparnað eins og hann er stundum nefndur.
Kostir þess að leggja 2-4% af launum í séreignasparnað eru margvíslegir: Með sparnaðinum fæst 2% viðbótarframlag frá vinnuveitendum, sparnaðurinn ber ekki fjármagnstekjuskatt og hann er einföld og þægileg leið til að bæta fjárhagslega afkomu þína eftir 60 ára aldur.
Svar:
Já, Auður býður upp á vörslu verðbréfa sem felur þó ekki í sér stýringu eignasafnsins. Ef þú hefur áhuga á að Auður taki verðbréf í vörslu biðjum við þig að fylla út
vörslusamning og koma honum til okkar.
Svar:
Auður er ekki banki og getur því ekki boðið bankareikning. Auður gæti þó boðið þér að fjárfesta fyrir þessa upphæð í verðbréfum og tekið þau í vörslu. Þannig gætir þú byrjað að byggja upp eignasafn. Um leið og sparnaðurinn nær 3 milljónum er
SpariAuður góður kostur til stýringu sparnaðar.