Hvað er eignastýring?
Nánar um fyrirspurnina:
Hvað er eignastýring?
Fullt svar:
Eignastýringarþjónusta kallast það þegar fjármálafyrirtæki tekur að sér að stýra verðbréfasafni viðskiptavina samkvæmt fyrirfram ákveðinni fjárfestingastefnu. Þá er fjárfest fyrir þeirra hönd ýmist í sjóðum eða einstaka verðbréfum. Fjármálaráðgjafar Auðar sjá um að fylgjast með tækifærum og fjárfestingarkostum og nýta sérþekkingu sína til að leitast við að ná sem bestri langtíma ávöxtun fyrir viðskiptavininn. Stýring eignasafna getur verið tímafrek og krefst mikillar þekkingar, því er það skynsamur kostur fyrir viðskiptavini að nýta sér eignastýringarþjónustu einkum ef eignasafn er umtalsvert.