Auðlegð-eignastýring
Auðlegð er sérsniðin eignastýringarþjónusta sem hentar vel þegar sparnaður eða lausafé er yfir 15 milljónum króna.
Auðlegðarþjónustan einkennist af stöðugri vöktun eignasafnsins og því að sérstök fjárfestingarstefna er sett upp fyrir hvern viðskiptavin fyrir sig, þar sem tillit er til aðstæðna eiganda svo sem fjárfestingartíma, markmiða, afstöðu til áhættu, eðli annarra eigna sem og framtíðaráforma.
Stýring og ávöxtun eignasafna getur verið tímafrek og krafist mikillar sérfræðiþekkingar, eignastýring er því skynsamlegur kostur fyrir þá sem vilja ná góðum árangri í fjárfestingum. Auðlegðarþjónusta hentar jafnt fyrir einstaklinga, fyrirtæki, félagasamtök, styrktar- eða lífeyrissjóði.
Sérstakur viðskiptastjóri sér um að vakta eignasafnið og vera tengiliður viðskiptavinar. Viðskiptastjóri sér um að fara reglulega yfir hentugleika fjárfestingarstefnu og meta árangur í samráði við viðskiptavin.
Þú getur kynnt þér Auðlegð betur með því að panta tíma hjá ráðgjafa: radgjof@audur.is
Auður hefur veitt eignastýringarþjónustu fyrir stærri eignasöfn (Auðlegðarþjónustu) frá því í apríl 2008. Árangur í fjárfestingum hefur verið afar góður og vel hefur tekist að verja og ávaxta eignir viðskiptavina enda gerir óháð staða Auðar okkur kleift að veita ávallt ráðgjöf sem best þjónar hagsmunum viðskiptavina.

