Þórður Emil Ólafsson, framkvæmdastjóri - Þórður Emil hefur áralanga reynslu af fjármálaráðgjöf og eignastýringu bæði fyrir einstaklinga og fagfjárfesta. Hann starfaði lengi erlendis bæði á sviði einkabankaþjónustu sem og í eignastýringu. Þórður Emil er með BS próf í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst.
Netfang: thordur@audur.is
Brynja Hjálmtýsdóttir, fjárfestingastjóri - Brynja er fjárfestingastjóri eignastýringar, hún hefur starfað við eignastýringu í rúman áratug. Brynja hefur bæði annast eignastýringu fyrir einstaklinga og fyrirtæki en síðastliðin ár hefur hún starfað í eignastýringu fyrir fagfjárfesta þ.e. lífeyris- og tryggingarsjóði. Hún hefur einnig verið sjóðsstjóri verðbréfasjóða. Brynja er viðskiptafræðingur af stjórnunarsviði Háskóla Íslands og löggiltur verðbréfamiðlari.
Netfang: brynja@audur.is

Lára J. Björnsdóttir - Lára hefur margra ára reynslu af íslenskum fjármálamarkaði og hefur gengt ýmsum störfum innan bankageirans. Síðustu ár hefur hún sérhæft sig í fjármálaráðgjöf til einstaklinga og þáttum er tengjast einkabankaþjónustu. Lára er rekstrarfræðingur frá Bifröst.
Netfang: lara@audur.is

Hilmar Þór Kristinsson – Hilmar hefur náð góðum árangri við eignastýringu og einkabanka þjónustu auk þess að hafa áralanga reynslu af stjórnun upplýsingatæknimála. Hilmar hefur lokið MBA prófi frá Háskóla Íslands og prófi í kerfis og tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Netfang: hilmar@audur.is

Guðlaug Kristín Pálsdóttir - Guðlaug hefur starfað hjá Auði frá stofnun fyrirtækisins, fyrst við uppgjör og frágang verðbréfaviðskipta og síðan sem lífeyrissparnaðarráðgjafi, áður en hún gekk til liðs við eignastýringu Auðar. Guðlaug hefur bæði starfað innan bankageirans auk þess að hafa mikla reynslu af rekstri fyrirtækja og rak eigin fyrirtæki til fjölda ára með góðum árangri.
Netfang: gudlaug@audur.is
Björg Hauksdóttir - Björg hefur mikla reynslu af eignastýringu en áður en hún kom til Auðar starfaði hún sem sérfræðingur á sviði eignastýringar hjá MP banka allt frá árinu 2000. Áður en Björg hóf störf hjá MP banka starfaði hún á verðbréfasviði Búnaðarbankans. Hún hefur starfað samfellt á fjármálamarkaði frá árinu 1991.
Netfang: bjorg@audur.is
Þér er einnig velkomið að hringja í okkur í síma 585-6500 eða koma í heimsókn í Borgartún 29, við tökum vel á móti þér.

