Hugmyndafræði Auðar
Við leggjum áherslu á óháða ráðgjöf. Við erum meðvituð um áhættu og ábyrgð. Við erum óhrædd við að nálgast fjármálaþjónustu á nýjan og óhefðbundinn máta.
Óháð staða Auðar kemur í veg fyrir hagsmunaárekstra og gerir okkur kleift að velja fjárfestingarkosti eingöngu út frá hagsmunum viðskiptavina.
Við viljum að viðskiptavinir séu hluti af Auði. Þess vegna miða öll okkar samskipti við viðskiptavini að því að byggja upp viðskiptasamband sem byggir á trausti og gagnkvæmum ávinningi með langtímahagsmuni að leiðarljósi.

