Samstarfsaðilar

Víðtækt samstarf við innlend og erlend fjármálafyrirtæki eykur fjölbreytni fjárfestingakosta sem standa viðskiptavinum okkar til boða. Auður býður verðbréfasjóði frá öllum helstu fjármálafyrirtækjum landsins.

Helstu erlendu samstarfsaðilar eru:

BlackRock

BlackRock er alþjóðlegt fyrirtæki sem hefur upp á að bjóða mikið úrval af skuldabréfa- og hlutabréfasjóðum. Sérstaða þeirra felst m.a. í sérstakri aðferðafræði við fjárfestingar og hefur fyrirtækið hlotið fjölda verðlauna fyrir góðan árangur, hæft starfsfólk og örugga verkferla. Starfsmenn þeirra eru yfir 5.500  í 19 löndum og þar af eru 700 sérfræðingar í fjárfestingum.  Black Rock rekur 63 sjóði. Eignir undir stýringu í desember 2007 voru 95, 6 billjónir bandaríkjadala.  Black Rock er fjórða stærsta eignastýringarfyrirtækið í heiminum og jukust eignir í stýringu um 41% árið 2007.  Af 63 sjóðum Black Rock fá 27 þeirra hæstu einkunn Standard og Poor´s matsfyrirtækisins.  

 

F&C

 F&C sérhæfir sig í rekstri sjóða sem fjárfesta í umhverfisvernd og samfélagslega ábyrgum fyrirtækjum.  Fjárfestingastefna þeirra byggir á fjárfestingum í fyrirtækjum sem markvisst leggja sitt af mörkum til samfélagsins.  Þeir nota áhrif sín sem fjárfestis til að stuðla að því að fyrirtæki taki upp samfélagslega ábyrga stefnu, og forðast að fjárfesta í fyrirtækjum sem skaða samfélagið á einhvern hátt t.d. tóbaksframleiðslu, fjárhættuspilum, klámiðnaði, vopnasöl o.fl.    Sjóðir F&C hafa sýnt góða ávöxtun síðustu ár og erum við fullviss um að þessi tegund fjárfestinga muni færast í vöxt á næstu árum.

 

Senda síðu




Tungumál


innside_banners_bjorn
Óháð staða Auðar tryggir hagsmuni þína

Þetta vefsvæði byggir á Eplica