FramtíðarAuður

FramtíðarAuður, séreignarsparnaður Auðar Capital hóf starfsemi í apríl 2009 og hentar þeim sem vilja byggja upp trausta og örugga inneign í séreignarsparnaði fyrir efri árin. FramtíðarAuður svarar kalli þeirra sem vilja breyttan hugsunarhátt og nýja nálgun í fjárfestingum. Auður Capital er trú gildum sínum um að veita óháða og áhættumeðvitaða ráðgjöf. Að okkar mati var fyrir löngu kominn tími fyrir FramtíðarAuði; viðtökurnar sýna okkur einnig að svo sé.

Þótt kostir séreignarsparnaðar séu þeir sömu alls staðar getur verið mikill munur á nálgun vörsluaðila, gildum þeirra og gagnsæi. Það er mikilvægt að sjóðfélagar treysti þeim vörsluaðila sem þeir velja til að ávaxta séreignarsparnaðinn og að allt sé uppi á borðinu. FramtíðarAuður stendur fyrir nýjan hugsunarhátt, óháða fjármálaþjónustu og mannlega nálgun. FramtíðarAuður er fyrir hugsandi fólk. 

                                                                                                                  Bókaðu tíma hjá ráðgjöfum FramtíðarAuðar - séreign

 

Mikilvægi þess að safna í séreignarsparnað og leggja þannig grunn að fjárhagslegri afkomu í framtíðinni hefur aldrei verið meira en nú. Ávinningurinn af því að leggja 2-4% af launum í séreignasparnað er margvíslegur. Með sparnaðinum fæst 2% mótframlag frá launagreiðanda skv. kjarasamningi eða ráðningarsamningi, inngreiðsla þín er frádráttarbær frá tekjuskatti, sparnaðurinn ber ekki fjármagnstekjuskatt, og hann er einföld og þægileg leið til að bæta fjárhagslega afkomu þína eftir að 60 ára aldri er náð svo einhverjir kostir séu nefndir. 

Ef þú hefur hug á að fela FramtíðarAuði umsjón með þínum séreignarsparnaði skaltu fylla út samningseyðublað og senda okkur eða hafa samband við ráðgjafa okkar í síma 585-6500.

 

 botn1

  

 

Senda síðu




Tungumál



innside_banners_tomasgunnar
Séreignarsparnaður er besta sparnaðarformið sem völ er á
Þetta vefsvæði byggir á Eplica