Viltu fá kynningu?
Eitt af gildum Auðar Capital er mannleg nálgun. Það er stefna okkar að stilla auglýsingum í hóf en leggja frekar áherslu á að hitta viðskiptavini okkar og kynna þeim þannig hugmyndafræði okkar og hvaða þjónustuþætti við höfum upp á að bjóða. Heimsóknir til Auðar hafa mælst einstaklega vel fyrir enda gaman að sjá þann starfsanda sem ríkir hjá okkur. Við höfum haldið ófáar kynningar fyrir t.d. fyrirtæki, félagasamtök, saumaklúbba og hagsmunasamtök, ásamt því að hitta viðskiptavini persónulega.
Ef þú vilt koma í heimsókn eða fá kynningu þá hvetjum við þig til að hafa samband í síma 585-6500 eða senda okkur tölvupóst á netfangið framtidaraudur@audur.is.

