Gerast viðskiptavinur

Það er mjög einfalt að láta FramtíðarAuði sjá um séreignarsparnaðinn þinn.

  • Hringdu í síma 585-6500 eða sendu tölvupóst á netfangið framtidaraudur@audur.is og ráðgjafar okkar aðstoða þig við að gerast sjóðfélagi.
  • Komdu í Borgartún 29, 3. hæð og fáðu ráðgjöf og aðstoð hjá ráðgjöfum okkar. Þú getur komið þegar þér hentar eða bókað tíma í ráðgjöf.
  • Prentaðu út samninginn og sendu okkur í pósti: Auður Capital, b.t. FramtíðarAuður, Borgartúni 29, 105 Reykjavík. Einnig getur þú sent okkur skannað eintak af undirrituðum, og vottuðum, samningi á netfangið framtidaraudur@audur.is. Við óskum einnig eftir að fá frumritið sent í pósti.
  • Ef þú ert nú þegar með samning við annan vörsluaðila þarft þú að fylla út eyðublaðið: uppsögn og beiðni um flutning. Á þessu eyðublaði er einnig hægt að óska eftir flutningi á þeirri séreign sem þú hefur áunnið þér hjá öðrum vörsluaðilum til FramtíðarAuðar. Langflestir sjóðfélagar flytja inneignir með sér þegar þeir hafa gengið frá samningi við FramtíðarAuði enda hefur slíkt mikil þægindi í för með sér.
  • Það hefur verið mjög vinsælt fyrir hópa að koma til okkar og fá kynningu á þeirri hugmyndafræði sem Auður Capital stendur fyrir og þeim þjónustuþáttum sem við höfum uppá að bjóða. Viltu kynningu?

 

botn4

Senda grein



Tungumál



audur_tomas
Óháð staða, áhættumeðvitund, gagnsæi og góð ávöxtun

Þetta vefsvæði byggir á Eplica