Reiknaðu út sparnaðinn
Til að þú getir áttað þig sem best á því hvernig sparnaður þinn mun þróast og hver áætluð lokainneign verður getur þú reiknaðu út sparnaðinn miðað við þínar forsendur. Reiknivél.
Einstaklingur með 350 þúsund krónur í laun sparar 21 þúsund krónur á mánuði en útborguð laun lækka einungis um 8.792 kr.*
Ef tekið er dæmi af 30 ára einstaklingi með 350 þúsund króna mánaðarlaun sem leggur fyrir 4% eigið framlag í séreignarsparnað og fær 2% mótframlag frá launagreiðanda er áætluð inneign, við 60 ára aldur, þ.e eftir sparnað í 30 ár, rúmar 17 milljónir m.v. 5% ávöxtun.
Dæmið er í raun mjög einfalt: Sá sem ekki greiðir í séreignarlífeyrissparnað er að afsala sér 2% af sínum launum.
Tíminn vinnur með þér! Það er staðreynd, og okkar reynsla, að þegar fólk kemst á miðjan aldur þá fer það hugleiða og skoða sín lífeyrismál. Ástæðan er fyrst og fremst sú að það er að styttast í eftirlaunaaldurinn og því eðlilegt að skoða málin út frá sínum forsendum til að átta sig á sinni stöðu. Það er ekki síður mikilvægt fyrir þá sem yngri eru að gera ráðstafanir fyrir efri árin og tryggja sér örugg eftirlaunaár. Séreignarsparnaður er best til þess fallinn.
Vissir þú að:
1.000 kr. mánaðarlegur sparnaður í 40 ár, m.v. 5% ávöxtun gefur lokainneign upp á: 1.488.857 kr.
10.000 kr. mánaðarlegur sparnaður í 10 ár, m.v. 5% ávöxtun gefur lokainneign upp á: 1.550.225 kr.
Það borgar sig að huga að lífeyrismálunum á yngri árum. Spurðu bara þá sem eldri eru!


