Fagfjárfestasjóðir
Auður rekur fagfjárfestasjóðina: AUÐUR I , HVAMMUR
AUÐUR I leitar eftir fjárfestingartækifærum í starfandi fyrirtækjum á vaxandi markaði og leitast við að nýta tækifæri sem felast í vaxandi mann- og fjárauði kvenna.
HVAMMUR mun fjárfesta í atvinnuhúsnæði og öðrum tekjuberandi fasteignum á Íslandi.
Auður Capital féll frá áformum um sprotasjóðinn BJÖRK þar sem áhugi meðal fjárfesta reyndist ekki nægur til að koma á fót öflugum sprotasjóð. Markmið BJARKAR var að styðja reynslumikla frumkvöðla til uppbyggingar hugvitsamra og arðbærra fyrirtækja.

