BJÖRK

Markmið BJARKAR verður að styðja reynslumikla frumkvöðla til uppbyggingar hugvitsamra og arðbærra fyrirtækja

Frumkvöðlar þurfa fjármagn fyrir vöruþróun og markaðssókn, en í fæstum tilfellum er fjármagnið eitt nóg til að skara frammúr í harðri samkeppni. Frumkvöðlar þurfa einnig á stuðningi að halda við stefnumótun, myndun tenglanets, ráðleggingar við ýmsum vaxtarverkjum og síðast en ekki síst frekari fjármögnun fyrir enn frekari vöxt. 

Á bak við BJÖRK er hópur einstaklinga í Fjárfestingarráði og Ráðgjafaráði sem hefur mjög mikla reynslu af stofnun, rekstri og fjármögnun fyrirtækja. Þeir munu verða bakhjarlar frumkvöðlanna og vinna með þeim að sameiginlegum markmiðum.  

bjork

 

BJÖRK er fagfjárfestasjóður sem var stofnaður af Auði Capital og tónlistarkonunni Björk Guðmundsdóttur, sem er ötull talsmaður nýsköpunar, frjórrar hugsunar og aukinnar fjölbreytni í atvinnulífi Íslands

 

BJÖRK er fyrst og fremst að leita að reynslumiklum frumkvöðlum sem eru að vinna að viðskiptatækifæri sem byggir á auðlindum Íslands og á mikla vaxtarmöguleika. Fyrst og fremst er horft til mannauðs, en einnig nýtingu einstakra auðlinda Íslands eins og náttúru, endurnýjanlegri orku og sjávar og vatnsauðlindum.

BJÖRK er fagfjárfestasjóður og stendur fjármögnun sjóðsins yfir. Ákvarðanir um fjárfestingar sjóðsins verða ekki teknar fyrr en fjármögnun sjóðsins er lokið, en við erum ávallt spennt að heyra í frumkvöðlum með áhugaverðar hugmyndir. Fréttir um fjármögnun sjóðsins verða birtar á heimasíðu Auðar, en fram að því er hægt að fylgjast með BJÖRK á Twitter.

 

 

Senda síðu




Tungumál


innside_banners_baldur
Það felast ómæld vaxtartækifæri í fyrirtækjum sem leggja áherslu á sjálfbærni

Þetta vefsvæði byggir á Eplica