AUÐUR I er fagfjárfjárfestasjóður sem fjárfestir í fyrirtækjum í rekstri með mikla vaxtarmöguleika, gjarnan í meirihluta eigu eða undir stjórn kvenna, eða þar sem aðkoma Auðar getur leyst úr læðingi aukin verðmæti. AUÐUR I leggur áherslu á vaxtarfjármögnun (growth capital).
Rúmlega 20 fjárfestar hafa lagt sjóðnum til fé, meðal þeirra eru flestir af stærstu lífeyrissjóðum landsins sem og aðrir stofnana- og fagfjárfestar. Stærð sjóðsins er 3,2 milljarðar króna.
Fjárfestingarrammi AUÐAR I gerir ráð fyrir fjárfestingum í fyrirtækjum með a.m.k. 3-5 ára rekstrarsögu.
Nánar um fjárfestingarviðmið AUÐAR I
AUÐUR I stundar langtíma fjárfestingar. Sérstaklega er horft til áhugaverðra fjárfestingarkosta á Íslandi og í Norður-Evrópu.

