Fjárfestingar AUÐAR I

Fjárfestingar AUÐAR I - fagfjárfestasjóðs eru:

ELM DESIGN ELM - design

Þann 7. maí 2008 tilkynnti AUÐUR I kaup á þriðjungs hlut í ELM DESIGN. Fjárfestingunni er ætlað að styðja við og auka enn frekar þann mikla vöxt sem ELM hefur áorkað á síðustu árum.

ELM hannar, framleiðir og selur vandaðan hátískufatnað fyrir konur. Slagorð ELM eru “designed by women for women”. Félagið var stofnað 1999 af þremur íslenskum hönnuðum, Ernu Steinu, Lísbeti og Matthildi, og vísar nafn félagsins í upphafsstafi þeirra. ELM hefur náð miklum árangri á skömmum tíma. Salan hefur vaxið um tæp 50% á hverju ári síðustu 3 árin og kemur um 80% af sölunni erlendis frá, einkum frá Bandaríkjunum og Evrópu.                               

ELM rekur ennfremur verslun að Laugarvegi 1 í Reykjavík.

Stjórn ELM réð í maí 2008 Kristínu Hrafnkelsdóttur, textílhönnuð og M.A. í viðskiptum frá Pratt Institute, sem framkvæmdastjóra félagsins, en hún var áður vörustjóri hjá Össuri.

Arna Harðardóttir er stjórnarformaður ELM design.

 

Maður Lifandi og Bio vörur

Þann 8. október 2009 tilkynnti fagfjárfestasjóður Auðar Capital, AUÐUR I, kaup á meirihluta í félögunum Maður Lifandi og Bio vörum

Mynd: Maður lifandiMaður Lifandi er 5 ára gamalt fyrirtæki sem rekur veitingastaði og verslanir með heilsurétti og lífrænar vörur af ýmsu tagi og heldur auk þess úti öflugri fræðslu um fjölbreytt heilsutengd málefni.  Bio vörur eru heildsala á sviði lífrænnar matvöru, vítamína og fæðubótarefna. Meðal þekktustu vörumerkja Bio vara eru  Now, Bode og Himnesk hollusta.  Bæði fyrirtækin hafa átt mikilli velgengni að fagna undanfarin ár og hafa á að skipa öflugum hópi starfsmanna með mikla reynslu og sérþekkingu

Arndís Thorarensen var í desember 2008 ráðin framkvæmdastjóri Maður lifandi.  Arndís hefur starfað undanfarin 10 ár við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík þar sem hún kenndi stærðfræði og tölfræði. Arndís er mikil áhugamanneskja um hollustu og andlegt & líkamlegt heilbrigði og hefur m.a. sinnt einkaþjálfun í World Class og heilsuráðgjöf síðustu ár.

Sigrún Andersen var ráðin framkvæmdastjóri heildsöluhlutanns sem hlaut nafnið Lifandi ehf, en undir þeim hatti er heildsalan Biovörur rekin sem og heildsala Yggdrasill.  Sigrún starfaði áður sem framkvæmdastjóri Yggdrasill og þar áður sem framkvæmdastjóri Íshafnar ehf sem er dótturfélag Haga og  bar ábyrgð á uppbyggingu og rekstri 9 sérvöruverslana Haga m.a. Topshop, Dorothy Perkins, Oasis ofl.  Sigrún er með B.A. gráðu í fatahönnun frá Hollandi og MBA frá Háskólanum í Reykjavík.

Arna Harðardóttir er stjórnarformaður.

 

Securitas

Þann 14. apríl 2010 tilkynnti AUÐUR I , fagfjárfestasjóður um kaup á hlut í öryggisfyrirtækinu Securitas


Markmiðið með fjárfestingunni er að tryggja að Securitas verði áfram leiðandi afl á markaði öryggismála og verði betur í stakk búið til að mæta sífellt flóknari þörfum viðskiptavina

Securitas er öflugt fyrirtæki sem byggir á traustum grunni viðskiptavina og starfsmanna.  Markmið fyirtækisins er að auka öryggi viðskiptavina og koma í veg fyrir að þeir verði fyrir tjóni með öfluga tækniþekkingu og þjónustulund að leiðarljósi. 

 

TAL 

Mynd: TalAUÐUR I, fagfjárfestasjóður keypt fjarskiptafélagið TAL (IP-fjarskipti ehf) í júní 2010.  

TAL starfar á fjarskiptamarkaði og selur farsíma-, fastlínu-, breiðbands- og gagnaflutningaþjónustu til einstaklinga og fyrirtækja. TAL hefur lagt áherslu á einfalt vöruframboð og hagstæða og gagnsæa verðlagningu. Starfsmenn eru 90 talsins.  Saga TALs nær aftur til 2001 þegar fjarskiptafélagið Hive var stofnað, en TAL varð til við samruna Hive og Sko árið 2008. Saga vörumerkisins nær hins vegar aftur til 1998 þegar upphaflega TAL símafyrirtækið var stofnað.

Með fjárfestingu sinni í TALi hyggst AUÐUR I taka þátt í þeim tækifærum sem felast í vexti á fjarskiptamarkaðnum á komandi árum og vera leiðandi í að mæta þörfum viðskiptavina á einfaldan og skynsaman hátt. 

 

Yggdrasill og Vera líf

Þann 30. júní 2010 náðu AUÐUR I fagfjárfestasjóður slf. og einkafjármagnssjóðurinn Arev NI slhf. samkomulagi um kaup AUÐAR I á 100% hlut í félögunum Yggdrasil ehf. og Veru líf ehf.  Félögin voru áður í eigu Arev NI einkafjármagnssjóðsins. 

Yggdrasill og Vera líf sinna heildsölu og smásöluverslun á  lífrænt ræktuðum og heilsusamlegum vörum.  Meðal þekktra vörumerkja sem Yggdrasill flytur inn eru Rapunzel, Dr. Hauschka snyrtivörur frá Þýskalandi, Clipper te- og kaffivörur frá Bretlandi, Holle barnamatur frá Sviss og nokkur vörumerki frá hollenska fyrirtækinu Natudis sem er eitt stærsta lífræna fyrirtækið í Hollandi og Belgíu. 

 

Gagnavarslan

AUÐUR I, fagfjárfestasjóður rekinn af Auði Capital, festi kaup á tæplega 22% hlut í Gagnavörslunni ehf þann 22. águst 2010.  
 
Gagnavarslan er óháð þekkingarfyrirtæki sem býður þjónustu og hugbúnaðarlausnir á sviði gagnavörslu og upplýsingastýringar. Starfsmenn eru um 40 talsins og forstjóri er Brynja Guðmundsdóttir.  Gagnavarslan hefur á afar skömmum tíma náð að skapa sér sterka stöðu og laðað að sér gott teymi sérhæfðs starfsfólks auk þess að byggja upp viðskiptasambönd við mörg af stærstu fyrirtækjum landsins.  
 
Fjárfesting AUÐAR I er hluti af hlutafjáraukningu Gagnavörslunnar en auk AUÐAR I taka Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og einstaklingar þátt í aukningunni. Eftir hlutafjáraukninguna eru Brynja Guðmundsdóttir, AUÐUR I og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins stærstu hluthafar félagsins.

 

Ölgerðin

Mynd: ÖlgerðinAuður I  fagfjárfestasjóður ásamt meðfjárfestum lögðu til nýtt hlutafé í Ölgerðina þann 22. október 2010,  og eignuðust þar með 36% hlut í Ölgerðinni.  Samhliða eignaðist Arion banki 20% í félaginu.   

Ölgerðin er eitt af elstu iðnfyrirtækjum á Íslandi, stofnað 1913.  Hjá fyrirtækinu starfa um 300 starfsmenn.  Fyrirtækið framleiðir mörg  af elstu og sterkustu vörumerkjum landsins og flytur inn og dreifir fjölbreyttu úrvali vörumerkja frá birgjum um allan heim.

 

JÁ upplýsingaveitur

Þann 5. nóvember 2010 undirritaði félag í meirihlutaeigu Auðar I fagfjárfestasjóðs samning um kaup á Já upplýsingaveitum ehf. af Skiptum hf.

ja_logoJá annast útgáfu Símaskrárinnar, rekstur 118 og upplýsingavefjarins ja.is.  Árið 2005 var þessi starfsemi færð frá Símanum yfir til Já sem er sjálfstætt félag.   Já hefur náð góðum árangri bæði í rekstri og þjónustu við viðskiptavini.  Starfsmenn Já  leggja mikla áherslu á hraða svörun, traustar upplýsingar og góða þjónustu. Vefur félagsins, ja.is, fékk verðlaun Samtaka Vefiðnaðarins á síðasta ári sem besti íslenski vefurinn en vefurinn hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og á næstunni má vænta enn fleiri nýjunga frá félaginu á því sviði.  Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins og Katrín Olga Jóhannesdóttir voru meðfjárfestar AUÐAR I.

Senda grein



Tungumál


audur_subheader
Auður er meðvituð um áhættu og ábyrgð

Þetta vefsvæði byggir á Eplica