Starfsmenn
Arna Harðardóttir er framkvæmdastjóri Fagfjárfestasjóða Auðar Capital. Hún hefur víðtæka reynslu af fjármálum og stjórnun meðal annars sem fyrrum forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Calidris, fjármálastjóri Viðskiptaráðs og hún var lykilstarfsmaður í einkabankaþjónustu og sjóðastjórnun hjá Landsbankanum/Landsbréfum til fjölda ára. Þá hefur hefur Arna umtalsverða reynslu af rekstri og frumkvöðlastarfi, en hún rak eigin fyrirtæki um níu ára skeið. Ennfremur hefur hún setið í stjórnum fyrirtækja s.s. Calidris og Mentis og í stjórn Almenna lífeyrissjóðsins.
Arna hefur MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, BA próf í hagfræði frá háskólanum í Reading í Englandi og er löggiltur verðbréfamiðlari.
Netfang: arna@audur.is
Baldur Már Helgason er sjóðsstjóri BJARKAR. Hann hefur mikla reynslu af fjárfestingum og fjármögnun fyrirtækja. Baldur starfaði hjá Glitni í 9 ár, m.a. við fjárfestingar í sprotafyrirtækjum, lánveitingar til norrænna fyrirtækja auk fjárfestinga í sjávarútvegi og jarðvarma í Bandaríkjunum og Kanada. Samhliða fjárfestingum hefur Baldur fylgt þeim eftir í nánu samstarfið við lykilstjórnendur m.a. með stjórnarsetu.
Baldur er véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og löggiltur verðbréfamiðlari.
Netfang: baldur@audur.is
Fylgjast með BJÖRK á Twitter


