Nálgun Auðar
Af hverju ættir þú að láta Auði Capital sjá um séreignarsparnaðinn þinn?
Auður leggur sérstaka áherslu á að vera óháð og geta þannig ávallt tekið ákvarðanir byggðar á hagsmunum viðskiptavina. Ennfremur leggjum við ríka áherslu á áhættumeðvitund, þ.e. að skilja þá áhættu sem tekin er og tökum meðvitaðar og vel ígrundaðar ákvarðanir varðandi fjárfestingarkosti. Þessi nálgun hefur skilað okkur góðum árangri í fjárfestingum.
Við leggjum ávallt áherslu á gagnkvæman ávinning og leggjum okkur fram um að tala hreint út og segja hlutina á einfaldan og skýran máta. Við trúum því að nálgast beri fjármálaþjónustu út frá mannlegum forsendum og skilgreinum árangur okkar út frá fjárhagslegum viðmiðum um leið og við erum meðvituð um samfélags- og umhverfislega ábyrgð okkar. Við höfum hagnað að leiðarljósi en okkur er ekki sama hvernig við gerum hlutina og höfnum því viðhorfi að velja þurfi á milli fjárhagslegs eða samfélagslegs arðs. Við teljum að svona náum við árangri til lengri tíma.
FramtíðarAuður- séreign snýst um langtíma árangur. Séreignarsparnaður er langtíma sparnaður, úttekt hans getur hafist við 60 ára aldur og getur verið mikilvægur hluti tekna þinna á bestu árum ævinnar. Á þessum árum gefst oft meiri tími til að sinna áhugamálum og því gott til þess að vita að sparnaði þínum hefur verið vel sinnt þannig að þú hafir af honum góðar tekjur.
Við umsjón langtímasparnaðar þarf að huga að því að sjóðurinn beri góða og stöðuga ávöxtun og forðast að skammtímasveiflur hafi mikil áhrif á höfuðstólinn. Ennfremur þarf að huga sérstaklega vel að áhættudreifingu. Þetta er það sem við gerum best.


