Hvers vegna séreignasparnaður

Séreignasparnaður er besta sparnaðarformið sem í boði er fyrir einstaklinga. Um það er ekki deilt því kostirnir við séreignarsparnað eru margir. 

  • Öruggur sjóður fyrir efri árin - Að jafnaði verður fólk fyrir verulegri tekjuskerðingu þegar eftirlaunaaldri er náð þar sem lífeyrisgreiðslur við starfslok eru mun lægri en meðallaun yfir starfsævina. Með því að leggja fyrir í séreignarsparnað bætir þú kjör þín eftir að 60 ára aldri er náð.
  • Mótframlag launagreiðanda - Með því að leggja 2-4% af launum í séreignarsparnað  greiðir launagreiðandi 2% mótframlag samkvæmt flestum kjarasamningum. Ef þú greiðir ekki í séreignarsparnað ertu í raun að afþakka 2% launahækkun. Mótframlag launagreiðanda getur hlaupið á tugum eða hundruðum þúsunda á ári.
  • Enginn fjármagnstekjuskattur - Séreignarsparnaður er eina tegund sparnaðar sem er undanþeginn fjármagnstekjuskatti. Með hækkandi fjármagnstekjuskatti skiptir þetta sjóðfélaga sífellt meira máli.
  • Eign sem erfist að fullu - Falli einstaklingur frá áður en hann hefur lokið úttekt séreignarsparnaðar erfist eignin að fullu. Maki og börn greiða ekki erfðafjárskatt við útborgun.   
  • Séreignarsparnaður er ekki aðfararhæfur - Komi til þess að einstaklingur verði gjaldþrota er ekki unnt að ganga að séreignarsparnaði við gjaldþrotaskipti.   
  • Ábyrgðasjóður launa ábyrgist greiðslur - Við gjaldþrot launagreiðanda ábyrgist Ábyrgðasjóður launa að hámarki 4% viðbótariðgjald launþega og útlagðan lögfræðikostnað enda sé krafan ekki eldri en 18 mánaða og bú launagreiðanda hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Ef sjóðfélögum er kunnugt um að greiðslur í séreignarsparnað séu í vanskilum þurfa þeir að tilkynna það til Auðar Capital, en slík tilkynning er forsenda þess að innheimta vangreiddra iðgjalda hefjist.

  • Frestun á skattlagningu - Mánaðarlegt iðgjald fer óskattlagt inn í séreignarsparnaðinn. Þegar sparnaðurinn er tekinn út er greiddur hefðbundinn tekjuskattur. Það má því segja að um frestun á skattlagningu sé að ræða. Til að átta sig betur á þessu getur þú reiknað út dæmið miðað við þínar forsendur.

  • Einföld, þægileg og árangursrík sparnaðarleið -  Það er afskaplega fyrirhafnarlítið að leggja í séreignarsparnað en launagreiðandinn sér um allt umstangið og sérfræðingar Auðar Capital sjá um að fjárfesta og hámarka ávöxtun.  

Senda grein



Tungumál



audur_tomas
Óháð staða, áhættumeðvitund, gagnsæi og góð ávöxtun

Þetta vefsvæði byggir á Eplica