Sparnaðarleiðir

Þarfir fólks og staða er misjöfn. Með þetta í huga býður FramtíðarAuður upp á sex sparnaðarleiðir í séreignarsparnaði. Einnig er hægt að velja Framtíðarleið en þá flytjast eign og iðgjöld á milli sparnaðarleiða eftir aldri. Ráðgjafar Auðar Capital leggja mikla áherslu á að viðskiptavinir taki meðvitaða og upplýsta ákvörðun en þegar sparnaðarleið er valin er tvennt sem skiptir mestu máli. Í fyrsta lagi áhættuþol en viðskiptavinir sem vilja litlar sveiflur ættu að velja áhættuminni sparnaðarleiðir. Og í öðru lagi aldur en eftir því sem styttra er í útgreiðslu þeim mun minni sveiflur ættu að vera í þeirri sparnaðarleið sem valin er.

gudlaug_article_portrait

 

"Áhætta er í raun mælikvarði á sveiflur. Eftir því sem áhætta í fjárfestingum er meiri þeim mun meiri sveiflur eru í ávöxtun. Mikilvægt er að vera meðvitaður um þetta þegar sparnaðarleið er valin."

Guðlaug Björk Karlsdóttir, sjóðstjóri FramtíðarAuðar.

Leið I - 65% hlutabréf, 25% skuldabréf og 10% sérhæfðar fjárfestingar

LEID-I-AGUST2011

  • Fjárfesting í hlutabréfum er uppistaðan í Leið I og því geta sveiflur í ávöxtun verið töluverðar þar sem það er eðli hlutabréfa að sveiflast töluvert í verði frá einum tíma til annars. Þegar horft er til lengri tíma eru áhrif skammtímasveifla þó oftast óveruleg og stefnt er að góðri langtímaávöxtun. Leið I hentar helst þeim sem eiga langan söfnunartíma fyrir höndum.

 

 

Leið II - 42,5% hlutabréf, 50% skuldabréf og 7,5% sérhæfðar fjárfestingar

LEID-II-AGUST2011

  • Jafnvægi er á milli hluta- og skuldabréfa í Leið II. Almennt sveiflast skuldabréf ekki eins mikið í verði og hlutabréf. Ávöxtun skuldabréfa er stöðugri en í hlutabréfum og því eru sveiflur í ávöxtun í Leið II ekki eins miklar og í Leið I. Leið II hentar vel einstaklingum á miðjum aldri.

 

 

 

 Leið III - 20% hlutabréf, 75% skuldabréf og 5% sérhæfðar fjárfestingar

LEID-III-AGUST2011

  • Skuldabréf eru ríkjandi í Leið III sem minnkar líkur á miklum skammtímasveiflum. Leið III hentar sérstaklega vel einstaklingum yfir fimmtugu þar sem gera má ráð fyrir að 10-15 ár séu í úttekt sparnaðar.

 

 

 

 

 Leið IV - 12,5% hlutabréf og 87,5% skuldabréfLEID-IV-AGUST2011

  • Uppistaðan í Leið IV er í skuldabréfum en þó er aðeins fjárfest í hlutabréfum. Sveiflur í Leið IV ættu ekki að vera miklar og ávöxtun stöðug til lengri tíma litið.

 

 

 

 

 Leið V - 75% skuldabréf og 25% innlánLEID-V-AGUST2011

  • Í Leið V er vægi skuldabréfa hátt. Einnig eru í leiðinni innlán sem gerir leiðina að góðum kosti fyrir þá sem vilja öryggi og taka sparnaðinn út eftir stuttan tíma.

 

 

 

 

 Leið VI - 100% verðtryggt innlánLEID-VI-AGUST2011

  • Leið VI hentar einstaklega vel þeim sem vilja mikið öryggi og litlar sveiflur í ávöxtun. Þegar úttekt sparnaðar hefst er mikilvægt að auka öryggi og lágmarka sveiflur.

 

 

 

 Framtíðarleið

  • Viðskiptavinum stendur til boða að færast sjálfkrafa á milli sparnaðarleiða I-IV eftir aldri. Framtíðarleiðin er einföld og þægileg leið og tryggir að sjóðfélagi sé ávallt í viðeigandi áhættuflokki miðað við aldur og útborgunartíma.

 

 Fjárfestingastefna og samsetning 31.10.2011

botn3

Senda grein



Tungumál



innside_banners_magnea
Það er auðvelt að flytja inneign á milli vörsluaðila - við aðstoðum þig

Þetta vefsvæði byggir á Eplica