Úttekt séreignar

Útgreiðsla séreignarsparnaðar getur hafist við 60 ára aldur.

Mögulegt er að taka allan sparnaðinn út í einu lagi, en skynsamlegra er að dreifa úttektinni yfir nokkurra ára tímabil.

Viljir þú hefja töku lífeyrissparnaðar biðjum við þig að vera í sambandi framtidaraudur@audur.is eða í síma 5856500.

 

Aukin heimild til fyrirframgreiðslu séreignarsparnaðar.

 

Nýverið tóku gildi lög sem heimila hækkun á fyrirframgreiðslu séreignarsparnaðar úr 5.000.000 í 6.250.000.

 

Nánari upplýsingar:

 

  • Heimilt er að greiða út allt að 6.250.000 kr. á 15 mánuðum eða 416.667 kr. á mánuði fyrir skatt. Útgreiðslutími styttist hlutfallslega ef um lægri fjárhæð er að ræða.
  • Fyrsta útgreiðsla skv. nýrri heimild verður 31. október ef umsókn hefur borist til Auðar fyrir 20. október.
  • Sú inneign sem heimilt er að taka út miðast við stöðuna 1. október þegar lögin tóku gildi.
  • Fjárhæðir sem hafa verið greiddar út skv. eldri heimildum dragast frá hámarksheimildinni, kr. 6.250.000.
  • Greitt verður áfram út skv. eldri umsóknum en þeir sem kjósa að gera breytingar þurfa að skila inn nýrri umsókn og fellur þá niður eldra greiðslufyrirkomulag.
  • Greiddur er tekjuskattur af séreignarsparnaði við úttekt.
  • Sjóðfélagi ber ábyrgð á því að tilkynna Auði Capital hvaða skatthlutfall eigi að nota við útreikning staðgreiðslu.
  • Eingöngu er mögulegt að taka út séreignarsparnað hjá einum vörsluaðila í senn.
  • Vörsluaðilar séreignarsparnaðar þurfa samþykki Ríkisskattsstjóra áður en útgreiðsla getur hafist.
  • Sjóðfélagi getur afturkallað beiðni um útgreiðslu á útgreiðslutímanum.
  • Heimild til úttektar gildir til 30. júní 2012.
  • Umsókn um útgreiðslu þarf að skila til Auðar Capital, Borgartúni 29 eða á netfangið framtidaraudur@audur.is 

 

 Greiðslutilhögun:

  • Greitt er út síðasta virkan dag mánaðar
  • Umsókn þarf að hafa borist til Auðar Capital fyrir 20. dag útgreiðslumánaðar.
  • Umsóknareyðublað má nálgast hér

 

Ráðgjafar FramtíðarAuðar veita fúslega allar nánari upplýsingar í síma 585 6500 eða með því að senda tölvupóst á netfangið framtidaraudur@audur.is



Senda grein



Tungumál



innside_banners_tomasgunnar
Séreignarsparnaður er besta sparnaðarformið sem völ er á
Þetta vefsvæði byggir á Eplica