Fyrirtækjaráðgjöf

Auður Capital veitir fyrirtækjum og fjárfestum hefðbundna þjónustu á sviði fyrirtækjaráðgjafar, m.a. ráðgjöf við kaup, sölu eða sameiningu fyrirtækja og aðstoð við öflun hlutafjár eða lánsfjármögnunar. Fyrirtækjaráðgjöf Auðar Capital sérhæfir sig einnig í margvíslegri þjónustu í tengslum við  endurskipulagningu fyrirtækja.

Viðskiptavinir fyrirtækjaráðgjafar eru stór sem smá fyrirtæki, eignarhaldsfélög, lánveitendur, fasteignaeigendur, lífeyrissjóðir og aðrir fagfjárfestar. Dæmigerðir viðskiptavinir eru fyrirtæki sem vilja breyta um eignarhald, sækja nýtt fjármagn, styrkja markaðsstöðu með fyrirtækjakaupum eða endurskipuleggja rekstur með sölu eigna.

 

Fyrirtækjaráðgjöf Auðar Capital byggir á áratuga reynslu og þekkingu starfsmanna á sviði fyrirtækja- og fasteignaráðgjafar. Við leggjum áherslu á trúnað og heilindi og einbeitum okkur að því að veita óháða ráðgjöf og hafa ávallt hagsmuni viðskiptavinarins í fyrirrúmi. Markmið okkar er að vinna náið með viðskiptavinum okkar að því að finna einfaldar en snjallar og skynsamlegar lausnir með langvarandi samstarf að leiðarljósi.

 

 

Senda grein



Tungumál


innside_banners_magnus
Við leggjum áherslu á trúnað, heilindi og óháða ráðgjöf


Þetta vefsvæði byggir á Eplica