Fyrirtækjaráðgjöf

Auður Capital veitir fyrirtækjum og fjárfestum hefðbundna þjónustu á sviði fyrirtækjaráðgjafar, m.a. ráðgjöf við kaup, sölu eða sameiningu fyrirtækja og aðstoð við öflun hlutafjár eða lánsfjármögnunar. Fyrirtækjaráðgjöf Auðar Capital sérhæfir sig einnig í margvíslegri þjónustu í tengslum við fasteignir og endurskipulagningu fyrirtækja. (sjá þjónustuframboð).

Viðskiptavinir fyrirtækjaráðgjafar eru stór sem smá fyrirtæki, eignarhaldsfélög, lánveitendur, fasteignaeigendur, lífeyrissjóðir og aðrir fagfjárfestar. Dæmigerðir viðskiptavinir eru fyrirtæki sem vilja breyta um eignarhald, sækja nýtt fjármagn, styrkja markaðsstöðu með fyrirtækjakaupum eða endurskipuleggja rekstur með sölu eigna.

Senda síðu




Fyrirtækjaráðgjöf


Fyrirtækjaráðgjöf


Leita á vefnum




Tungumál



innside_banners_karl
Þekking, reynsla og fagmennska - það er Auður
Þetta vefsvæði byggir á Eplica