Starfsfólk fyrirtækjaráðgjafar

Mynd: Margit Robertet, fyrirtækjaráðgjöf

Margit Robertet veitir Fyrirtækjarjáðgjöf Auðar Capital forstöðu. Hún hefur áratuga reynslu af fyrirtækjaráðgjöf mest megnis erlendis frá þar sem hún starfaði fyrst í London hjá Barclays Bank frá 1993 og síðar í París hjá Credit Suisse til ársins 2005. Áður en Margit hóf störf hjá Auði var hún framkvæmdastjóri lánasviðs Straums Burðaráss Fjárfestingarbanka.

Margit er viðskiptafræðingur með MBA gráðu frá Rotterdam School of Management.

margit@audur.is

 

 

  

 

Bjarki

 

Bjarki Logason hefur mikla reynslu úr fjármálageiranum. Hann starfaði frá 2002-2008 hjá Landsbankanum við margvísleg störf, meðal annars í greiningardeild og fyrirtækjaráðgjöf, áður en hann stofnaði ráðgjafarfyrirtækið Strada Partners sem hann starfaði hjá áður en hann hóf störf hjá Auði.

Bjarki er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og löggiltur verðbréfamiðlari.

bjarki@audur.is

 

 

 

magnus_portret

 

Magnús Edvardsson starfaði áður sem sérfræðingur í Greiningardeild Kaupþings þar sem hann vann að greiningu og mati á þróun á fjármagnsmarkaði. Einnig tók hann þátt í greiningu á fyrirtækjum á markaði, skrifaði greinar og stóð að fræðslu. 

Magnús er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í fjárfestingarstjórnun frá sama skóla. 

magnus@audur.is

 

 

 

tomas_heimasida
 
 
Tómas Þór Eiríksson  starfaði áður sem fjármálastjóri hjá byggingafyrirtæki á norðurlandi í fjögur ár og síðan í 4 ár hjá fjármálafyrirtæki í fasteignatengdum verkefnum.

Tómas Þór er með B.Sc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri ásamt því að hafa verið í skiptinámi í Mazatlan í Mexico, hluta af náminu.
 
 
 

 

 

 

 

Almennar fyrirspurnir má senda á fyrirtaekjaradgjof@audur.is

Senda grein



Tungumál


innside_banners_magnus
Við leggjum áherslu á trúnað, heilindi og óháða ráðgjöf


Þetta vefsvæði byggir á Eplica