Þjónusta

Auður Capital býður viðskiptavinum sínum alhliða þjónustu á sviði fyrirtækja- og fasteignaráðgjafar.

Fyrirtækjaráðgjöf

Auður Capital veitir ráðgjöf við kaup, sölu eða sameiningu fyrirtækja m.a. aðstoð við verðmat, gerð sölulýsingar eða kynningarefnis, tilboðsgerð, mat á tilboðum, samningagerð og umsjón með áreiðanleikakönnun.

Auður Capital getur einnig aðstoðað fjárfesta við að vakta og greina þau tækifæri sem felast í að fjárfesta í fyrirtækjum og fasteignum á hverjum tíma.

Endurskipulagning fyrirtækja

Auður Capital leggur sérstaka áherslu á að veita hluthöfum, kröfuhöfum og öðrum hagsmunaðilum þjónustu í tengslum við endurskipulagningu fyrirtækja og ráðgjöf vegna fyrirtækja í tímabundnum greiðsluerfiðleikum. Þjónusta okkar tekur m.a. til greiningar á rekstri, mats á greiðsluhæfi og skuldaþoli viðkomandi fyrirtækis, samskipti við kröfuhafa og lánastofnanir, og umsjón með samningaviðræðum og samningagerð.

Fjármögnun

Auður Capital veitir ráðgjöf við fjármagnsskipan og aðstoð við fjármögnun fyrirtækja með milligöngu um öflun hlutafjár eða lánsfjár. Auður hefur einnig aðgang að breiðum hópi áhugasamra fjárfesta.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum, vinsamlegast sendið tölvupóst á: margit@audur.is

Senda grein



Tungumál


innside_banners_magnus
Við leggjum áherslu á trúnað, heilindi og óháða ráðgjöf

Þetta vefsvæði byggir á Eplica