AlheimsAuður
AlheimsAuður er góðgerðasjóður Auðar Capital ætlaður til að hvetja konur til athafna og frumkvæðis, einkum í þróunarlöndunum.
Auður Capital leggur á hverju ári 1% af hagnaði sínum í sjóðinn og gefst viðskiptavinum Auðar kostur á að gera slíkt hið sama.
Á aðalfundi Auðar Capital þann 23. mars 2009 ákvað stjórn Auðar að leggja tíu milljóna stofnframlag í sjóðinn.
AlheimsAuður er sjálfseignarstofnun, stjórn sjóðsins skipa; Guðrún Pétursdóttir formaður, Guðfinna S. Bjarnadóttir og Halla Tómasdóttir.
Styrkjum úr sjóðnum er úthlutað þann 19. júní ár hvert.
Sunnudaginn 19. júní 2011 var úthlutað úr AlheimsAuðar sjóðnum í þriðja sinn.
ABC barnahjálp hlaut styrk til kaupa á 200 saumavélum sem auka menntunar- og fræðslumöguleika stúlkna sem útskrifast úr
ABC skólum víðsvegar um heiminn. Annars vegar verður féð notað til að koma upp saumaskólum á starfsstöðvum ABC barnahjálpar. Hins vegar verður komið upp sjálfbærnisjóði sem lánar útskrifuðum stúlkum fyrir kaupum á saumavélum og gerir þeim þannig kleift að að stofna til eigin atvinnurekstrar. Gert er ráð fyrir að stúlkurnar greiði saumavélarnar upp á einu ári og þannig gefist
kostur á að fjármagna saumavélakaup næsta árgangs.
Mynd: Stjórn og styrkþegar AlheimsAuðar 2011.
Samtökin BasicNeeds hlutu styrk til að vinna að því að fyrirbyggja sjálfsvíg kvenna í Qinglong héraði í Kína. Samtökin vinna að því að þjálfa konur úr Qinglong héraði í að mynda tengslahópa kvenna sem miða að því að styrkja félagsleg tengsl og stuðning þeirra á milli. Samtökin leggja meðal annars áherslu á að þjálfa leiðbeinendur úr hópi kvenanna til að leiða áframhaldandi starf. Sjálfsvígstíðni ungra giftra kvenna í héraðinu er afar há, en hana má fyrst og fremst rekja til félagslegrar einangrunar kvenanna sem hafa flestar hverjar flutt um langan veg við giftingu og misst þannig tengsl við upprunafjölskyldur sínar og félagslegt stuðningsnet.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum hlaut árið 2010 styrk til fimm ára sem ætlaður er til uppbyggingar á Vigdísarstofu í alþjóðlegri tungumálamiðstöð stofnunarinnar. Annar hluti styrksins var veittur þann 19. júní 2011.
Þann 19. júní 2010 hlutu þrjú verkefni AlheimsAuðar styrki.
ABC barnahjálp hlaut styrk til að koma á fót skólum í fátækrahverfum Nairóbí í Kenya í tengslum við götubarnastarf sem ABC barnahjálp í Kenýa starfrækir undir stjórn Þórunnar Helgadóttur. .
Alnæmisbörn hlutu styrk til að greiða kostnað vegna skólagöngu ungra bágstaddra stúlkna á vegum Candle Light Foundation í Kampala, Úganda og fjárupphæð til handa smálánasjóði Candle Light Foundation.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum hlaut styrk til uppbyggingar á Vigdísarstofu í alþjóðlegri tungumálamiðstöð stofnunarinnar.
Stjórn og styrkþegar 2010. Frá vinstri: Auður Hauksdóttir, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur,
Guðrún Margrét Pálsdóttir, ABC-Barnahjálp, Hildur Gestsdóttir og Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir,
Alnæmisbörnum. Guðrún Pétursdóttir, Halla Tómasdóttir og Guðfinna S. Bjarnadóttir, stjórn
AlheimsAuðar. Við styrkveitinguna aðstoðuðu Katrín Lárusdóttir og Auður Ína Björnsdóttir.
Nánar um styrkþega 2010
Þann 19. júní 2009 var AlheimsAuðarstyrknum úthlutað í fyrsta sinn.
Styrkinn hlutu Enza - hjálparsamtök til byggingar fræðslumiðstöðvar í Mbekweni í Suður Afríku sem veita mun bágstöddum konum og ungum stúlkum aukna möguleika á því að verða virkir samfélagsþátttakendur.
Þá ákvað stjórn AlheimsAuðar að veita Guðrúnu Margréti Pálsdóttur, formanni og stofnanda ABC barnahjálpar, sérstaka viðurkenningu fyrir ötult starf sem hefur gefið þúsundum barna tækifæri til menntunar.
Næst verður úthlutað úr AlheimsAuði 19. júní 2011.
Umsóknum má skila á audur@audur.is.
Við höfum ekki tiltekið form á umsóknum en hvetjum umsækjendur til að skilgreina verkefnið vel og sýna fram á hvernig verkefnið stuðlar að atvinnusköpun, samfélagsuppbyggingu eða annarri verðmætasköpun með tilstuðlan kvenna.
Stjórn sjóðsins tekur ákvörðun um úthlutun styrkja.
Umsóknarfrestur er til 19. maí 2011.
Nánari upplýsingar veitir Þóranna Jónsdóttir í síma 585-6500 thoranna@audur.is

