AlheimsAuðarstyrkurinn 2009
Enza eru íslensk-/ s-afrísk hjálparsamtök sem miða að því að hjálpa stúlkum og konum sem verða barnshafandi en þurfa að gefa frá sér barn sitt vegna fátæktar og/eða útskúfunar. Starfsemin fer fram í Mbekweni fátækrahverfinu í Suður-Afríku. Í mörgum tilfellum hefur þeim verið útskúfað úr samfélögunum sem þær búa í, eða þá að þær flýja án þess að fólk viti af ástandi þeirra og ákveða að gefa barnið. Þannig geta þær snúið aftur og haldið lífi sínu áfram eins og ekkert hafi í skorist. Séu þær hins vegar útskúfaðar eiga þær fáa kosti aðra en að skapa sér nýtt líf.
Einstæðar mæður eru litnar hornauga í fátækrahverfunum. Þar eru nauðganir líka mjög algengar, en Suður-Afríka er það land þar sem flestar nauðganir eiga sér stað í heiminum. Stúlku eða konu er nauðgað í landinu á 27 sekúndna fresti. Verði stúlkan barnshafandi er hún yfirleitt sjálf gerð ábyrg fyrir nauðguninni og gjarnan útskúfuð í kjölfarið, sé hún ekki gift.
Á meðan stúlkurnar eru barnshafandi geta þær fengið húsaskjól hjá hjálparsamtökunum ProCare, sem eru í nánu samstarfi við Enza. Þegar barnið er fætt, geta stúlkurnar hins vegar ekki fengið að vera lengur inni á heimilinu. Á þessum tímapunkti tekur Enza við stúlkunum og veita þeim tímabundið húsaskjól, fræðslu og þekkingu til að hjálpa þeim að komast yfir í þau tækifæri sem eru til staðar á svæðinu.
Styrkurinn frá AlheimsAuði gerir Enza kleift að byggja fræðslumiðstöð í Mbekweni þar sem stúlkurnar, og aðrar konur í fátækrahverfinu, geta fengið fræðslu og ráðgjöf. Þar verða hagnýt námskeið og leiðsögn en einnig verður atvinnuskapandi starfsemi í húsinu þar sem konurnar framleiða vörur til að selja ferðamönnum. Ágóðinn mun renna til reksturs fræðslusetursins, sem þannig mun geta staðið að hluta undir sér fjárhagslega. Nú þegar hefur tölvukennsla hafist og miðar tölvusöfnunin að því að sem flestar tölvur séu tiltækar fyrir stúlkurnar þegar heimilið og fræðslumiðstöðin opnar, sem mun taka við stúlkum frá nokkrum heimilum og veita þeim fjölþætta aðstoð og fræðslu. Fræðslumiðstöðin verður einnig opin öðrum konum úr fátækrahverfunum.
Ruth Gylfadóttir er stofnandi og stjórnarformaður Enza. Ruth er búsett á Höfðasvæðinu í Suður-Afríku, skammt frá Wellington sem er næsti bær við Mbekweni fátækrahverfið.
Sigríður Guðlaugsdóttir er varaformaður og talsmaður Enza á Íslandi. Hún heimsótti Mbekweni fátækrahverfið síðastliðið sumar og gerði heimildarmynd um starfið þar.
20. október 2009 - Enza kaupir hús fyrir Enza skólann
Orðið enza er úr tungumálum Zulu og Xhosa frumbyggja í Suður-Afríku og þýðir að gera eða framkvæma.
Um ABC - barnahjálp
Guðrún Margrét Pálsdóttir stofnaði ABC barnahjálp árið 1988 sem íslenskt, samkirkjulegt hjálparstarf. Tilgangurinn var að veita nauðstöddum börnum varanlega hjálp og vera farvegur fyrir framlög gjafmildra Íslendinga. Áhersla er lögð á að framlögin skili sér óskert til umkomulausra barna í fátækum löndum.
Meira en 12.000 börn eru nú á framfæri ABC barnahjálpar með hjálp fósturforeldra, aðallega á Indlandi, Úganda, Filippseyjum, Pakistan og Kenýa, Líberíu, Senegal og Burkina Faso. Um 7.000 stuðningsaðilar styðja börn á vegum ABC í dag og stendur aðeins einn aðili að baki hverju barni.
Styrkur AlheimsAuðar kemur í góðar þarfir þar sem gengisþróun íslensku krónunnar hefur komið harkalega niður á hjálparsamtökum sem starfa erlendis, ástandið er sérstaklega erfitt í Kenya og verður styrkurinn að mestu nýttur þar.

