Styrkþegar 2010

Styrkþegar AlheimsAuðar 2010

 


Logo-ABC-barnahjalp-merki

ABC barnahjálp hlaut aðalstyrk AlheimsAuðar árið 2010.  Tilgangur ABC barnahjálpar er að veita nauðstöddum börnum varanlega hjálp og vera farvegur fyrir framlög gjafmildra Íslendinga sem skila sér óskert til umkomulausra barna í fátækari löndum. ABC barnahjálp styrkir nú um 12.000 börn með hjálp íslenskra og nú einnig erlendra fósturforeldra, aðallega á Indlandi, Úganda, Filippseyjum, Pakistan og Kenýa. Um 7000 stuðningsaðilar styðja börn á vegum starfsins í dag. Þórunn Helgadóttir stýrir starfi ABC barnahjálpar í Kenýa en hún hefur helgað líf sitt börnum sem komast ekki í skóla sökum fátæktar.  Fall krónunnar og efnahagsástandið á Íslandi hefur gert henni mun erfiðara fyrir og má segja að starfið sé dagleg barátta upp á líf og dauða, en ABC í Kenýa sér nú um 600 börnum fyrir skólavist og fæði. Styrkurinn frá AlheimsAuði verður nýttur til að byggja skólahúsnæði sem veita mun eins mörgum börnum og hægt er tækifæri á skólagöngu. Verið er að festa kaup á lóð og er stefnt að opnun fyrsta skólans í janúar 2011. 


Alnæmislogo_alnaemisbornbörn voru stofnuð vorið 2004 til að styðja Candle Light Foundation  (CLF) í Kampala í Uganda, en Erla Halldórsdóttir heitin stofnaði CLF árið 2001.  CLF hjálpar ungum stúlkum sem eiga um sárt að binda vegna alnæmisfaraldursins að hefja nýtt líf. Margar þeirra hafa lent á götunni og hvergi átt sér skjól. CLF gefur stúlkunum tækifæri til að starfa við kertagerð auk þess að gefa þeim færi á að stunda nám og afla sér starfsréttinda. Mikilvægur þáttur endurhæfingarinnar felst í því að læra að taka ábyrgð á eigin lífi og margar þeirra setja á fót eigin atvinnurekstur að lokinni þjálfun, en þar skiptir smálánasjóður CLF sköpum.  CLF hefur á síðustu 9 árum komið um 1000 stúlkum til aðstoðar.  Styrkurinn frá AlheimsAuði mun gera CLF kleift að styrkja fleiri stúlkur til náms á næsta ári, auk þess að auka fjárráð smálánasjóðsins. 


vigdisStofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum er rannsóknarstofnun innan Hugvísindastofnunar HÍ. Vigdís er velgjörðarsendiherra tungumála hjá Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Byggingarsjóður Alþjóðlegrar tungumálamiðstöðvar hefur að markmiði að reisa menningar- og tungumálabyggingu fyrir Stofnun Vigdísar.  Vigdísarstofa verður helguð Vigdísi Finnbogadóttur en þar verður hægt að fræðast í máli og myndum um líf hennar og störf, ekki síst í þágu tungumála. Stofan verður öllum opin. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur hefur sett sér það metnaðarfulla markmið að stórefla starfsemi sína með því að setja á laggirnar alþjóðlega tungumálamiðstöð. Fram til 29. júní stendur yfir þjóðarátak, þar sem öllum - einstaklingum, fyrirtækjum og samtökum - gefst tækifæri til að leggja sitt af mörkum. Styrktarnúmer:  903 1030 kr. 1.000,-  903 3030 kr. 3.000,-
903 5030 kr. 5.000,-


Senda grein



Tungumál



innside_banners_gudlaug
Áhættumeðvitund hefur skilað okkur góðum árangri
Þetta vefsvæði byggir á Eplica