Styrkþegar 2011
ABC barnahjálp hlaut aðalstyrk AlheimsAuðar árið 2011. Styrkurinn er veittur til kaupa á 200 saumavélum sem auka menntunar- og fræðslumöguleika stúlkna sem útskrifast úr ABC skólum víðsvegar um heiminn. Féð verður notað til að koma upp saumaskólum
á starfsstöðvum ABC barnahjálpar og til að koma á fót sjálfbærnisjóði sem lánar
útskrifuðum stúlkum fyrir kaupum á saumavélum og gerir þeim þannig kleift að að
stofna til eigin atvinnurekstrar.
Tilgangur ABC barnahjálpar er að veita nauðstöddum börnum varanlega hjálp og vera farvegur fyrir framlög gjafmildra Íslendinga sem skila sér óskert til umkomulausra barna í fátækari löndum. ABC barnahjálp styrkir nú um 12.000 börn með hjálp íslenskra og nú einnig erlendra fósturforeldra, aðallega á Indlandi, Úganda, Filippseyjum, Pakistan og Kenýa. Um 7000 stuðningsaðilar styðja börn á vegum starfsins í dag. Þórunn Helgadóttir stýrir starfi ABC barnahjálpar í Kenýa en hún hefur helgað líf sitt börnum sem komast ekki í skóla sökum fátæktar. Fall krónunnar og efnahagsástandið á Íslandi hefur gert henni mun erfiðara fyrir og má segja að starfið sé dagleg barátta upp á líf og dauða, en ABC í Kenýa sér nú um 600 börnum fyrir skólavist og fæði.
AlheimsAuður styrkti byggingu skólahúsnæðis í Keynýa árið 2010.
Basic needs eru góðgerðarsamtök sem hlú að geðsjúkum og flogaveikum í fátaækusturíkjum heimsins. Erla Magnúsdóttir hefur síðastliðin ár starfað á vegum samtakana í Kína, einkum í Qinglong héraði, þar sem hún hefur unnið með konum á svæðinu. Erla mun nýta styrkin til að efla frekar samfélagsuppbyggingu og forvarnarstarf í héraðinu.

