Algengar spurningar og svör

Fyrirsagnalisti

Hvað er eignastýring?

Svar:

Eignastýringarþjónusta kallast það þegar fjármálafyrirtæki tekur að sér að stýra verðbréfasafni viðskiptavina samkvæmt fyrirfram ákveðinni fjárfestingastefnu. Þá er fjárfest fyrir þeirra hönd ýmist í sjóðum eða einstaka verðbréfum. Fjármálaráðgjafar Auðar sjá um að fylgjast með tækifærum og fjárfestingarkostum og nýta sérþekkingu sína til að leitast við að ná sem bestri langtíma ávöxtun fyrir viðskiptavininn. Stýring eignasafna getur verið tímafrek og krefst mikillar þekkingar, því er það skynsamur kostur fyrir viðskiptavini að nýta sér eignastýringarþjónustu einkum ef eignasafn er umtalsvert.

Mig langar að leggja til hliðar mánaðarlega til að byggja upp sjóð, get ég komið í viðskipti til Auðar?

Svar:

Viðskiptavinir SpariAuðar geta bætt inn á eignasafn sitt með mánaðarlegum greiðslum.  Lágmarks greiðsla er 10.000 kr.

FramtíðarAuður- séreign er þjónusta við þá sem vilja byggja upp séreignarsparnað eða viðbótarlífeyrissparnað eins og hann er stundum nefndur. Kostir þess að leggja 2-4% af launum í séreignasparnað eru margvíslegir: Með sparnaðinum fæst 2% viðbótarframlag frá vinnuveitendum, sparnaðurinn ber ekki fjármagnstekjuskatt og hann er einföld og þægileg leið til að bæta fjárhagslega afkomu þína eftir 60 ára aldur.

Ég á hlutabréf í nokkrum fyrirtækjum getur Auður séð um þessi hlutabréf fyrir mig?

Svar:

Já, Auður býður upp á vörslu verðbréfa sem felur þó ekki í sér stýringu eignasafnsins.  Ef þú hefur áhuga á að Auður taki verðbréf í vörslu biðjum við þig að fylla út vörslusamning og koma honum til okkar. 

Ég á 700 þúsund á bankareikningi, getur Auður séð um að ávaxta þetta fé fyrir mig?

Svar:

Auður er ekki banki og getur því ekki boðið bankareikning. Auður gæti þó boðið þér að fjárfesta fyrir þessa upphæð í verðbréfum og tekið þau í vörslu. Þannig gætir þú byrjað að byggja upp eignasafn.  Um leið og sparnaðurinn nær 3 milljónum er SpariAuður góður kostur til stýringu sparnaðar.

Veitir Auður lán til stofnunar á fyrirtæki?

Svar:

Nei, Auður er verðbréfafyrirtæki og hefur ekki heimild til útlána.

Ég er með mjög góða viðskiptahugmynd en vantar fjármagn til að koma henni í framkvæmd, getur Auður útvegað þetta fjármagn?

Svar:

Almennt fjárfesta fagfjárfestasjóðir Auðar Capital ekki í hugmyndum, heldur í fyrirtækjum sem komið hefur verið á fót eða skapað sér rekstrarsögu. AUÐUR I leitar eftir fjárfestingum í fyrirtækjum sem hafa a.m.k. 3-5 ára rekstrarsögu. Í einhverjum tilfellum getur þó verið að Auður geti aðstoðað við öflun hlutafjár í góðar hugmyndir. BJÖRK leitar hins vegar að fjárfestingartækifærum í fyirirtækjum sem eru nýstofnuð eða eru tiltölulega stutt á veg komin í þróunarferlinu. 

Ég er með fyrirtæki í rekstri og sé ákveðna vaxtamöguleika en vantar fjármagn til að nýta þá, getur Auður komið að málinu?

Svar:

Ef fyrirtækið og aðstæður þess falla að fjárfestingarramma AuÐar I er mögulegt að sjóðurinn geti komið inn sem fjárfestir. Sendu okkur stutta samantekt sem tekur á helstu atriðum á audur@audur.is

Veitir Auður lán til fyrirtækja í rekstri?

Svar:

Nei, Auður er verðbréfafyrirtæki og hefur því ekki heimild til veitingu útlána.

Hvað er fagfjárfestasjóður?

Svar:

Fagfjárfestasjóðir eru sjóðir sem bjóðast fagfjárfestum. Rekstur slíkra sjóða hvað varðar rekstrarform, fjárfestingarstefnu og upplýsingagjöf er sveigjanlegra en sjóða sem bjóðast almenningi. Fagfjárfestasjóðir eru ekki taldir henta almennum fjárfestum, sem njóta sérstakar verndar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti. Ein tegund fagfjárfestasjóða eru svokallaðir framtakssjóðir (e.Private Equity) eins og AUÐUR I, sem er stofnaður sem samlagsfélag.

 

 

Ég hef áhuga á að kaupa fyrirtæki, getur Auður aðstoðað mig?

Svar:

Fyrirtækjaráðgjöf AuÐar getur tekið að sér ráðgjöf við kaup eða sölu á fyrirtækjum. Sendið fyrirspurn á audur@audur.is og við munum hafa samband.

Ég vil selja fyrirtækið mitt, getur Auður aðstoðað mig?

Svar:

Fyrirtækjaráðgjöf AuÐar getur tekið að sér ráðgjöf við kaup eða sölu á fyrirtækjum. Sendið fyrirspurn á audur@audur.is og við munum hafa samband.

Ég fékk tilboð í fyrirtækið mitt og vantar aðstoð við að meta verðmæti fyrirtækisins og til þess að hámarka það verð sem ég get fengið

Svar:

Fyrirtækjaráðgjöf AuÐar getur gjarnan aðstoðað þig við að verðleggja fyrirtækið þitt. Sendið fyrirspurn á audur@audur.is og við munum hafa samband.



Tungumál




thoranna_isl
Þetta vefsvæði byggir á Eplica