Starfsmannalisti

Mynd: Guðlaug Pálsdóttir

Guðlaug Pálsdóttir

  • Starfsheiti: Ráðgjafi
  • Netfang: gudlaug at audur.is

Guðlaug hefur starfað hjá Auði síðan haustið 2007 og var einn af fyrstu starfsmönnum fyrirtækisins, hún starfaði fyrst við fjármála og rekstrarsvið Auðar, var síðar ráðgjafi FramtíðarAuða en er nú starfsmaður eignastýringarsviðs. Áður en Guðlaug gekk til liðs við Auði sinnti hún starfi vörumerkjastjóra hjá Halldóri Jónssyni ehf. Guðlaug hefur mikla reynslu af rekstri fyrirtækja og rak eigin fyrirtæki til fjölda ára með góðum árangri. Guðlaug hefur einnig starfað hjá Búnaðarbanka Íslands og Kaupþingi í erlendum viðskiptum.

Guðlaug lauk Rekstrar- og viðskiptanámi frá EHÍ árið 2001.

Guðlaug er mikill golfari og stundar þá iðju af kappi. Hún hefur gaman af því að ferðast og geysist um landið með fjölskylduna og hundinn. Hún á það til að skella sér á línuskauta með dætrum sínum, Thelmu Hrund (22 ára) og Ástrós Eir (13 ára). Hún nýtur þess að lesa góðar bækur, spila bridge og elda góðan mat. Hún hefur mikið dálæti á hestum og hundum og væri eflaust með hestabúgarð ef hún væri búsett í sveit.

 



Tungumál



innside_banners_bjorn
Óháð staða Auðar tryggir hagsmuni þína
Þetta vefsvæði byggir á Eplica