Starfsmannalisti
Brynja Hjálmtýsdóttir
- Starfsheiti: Fjárfestingastjóri
- Netfang: brynja at audur.is
Brynja er fjárfestingarstjóri eignastýringar og hóf störf hjá Auði í árslok 2007, hún hefur starfað við eignastýringu í rúmlega 12 ár. Brynja hefur annast fjárfestingar fyrir viðskiptavini Auðar frá stofnun. Áður hafði hún bæði annast eignastýringu fyrir einstaklinga og fyrirtæki og síðar eignastýringu fyrir fagfjárfesta þ.e. lífeyris- og tryggingarsjóði. Hún hefur einnig verið sjóðsstjóri verðbréfasjóða.
Brynja er viðskiptafræðingur af stjórnunarsviði Háskóla Íslands og löggiltur verðbréfamiðlari.
Frá unga aldri hefur Brynja verið virk í íþróttahreyfingunni nú síðast sem formaður Fimleikadeildar Umf. Selfoss og í aðalstjórn Umf. Selfoss 2004-2008. Frá 2009 hefur hún verið skoðunarmaður reikninga Umf. Selfoss. Hún hefur gaman af ferðalögum um Ísland, sérstaklega um hálendið og stundar gönguferðir með fjölskyldu og vinum jafnt innanlands sem utan. Brynja er umhverfisverndarsinni, flokkar ruslið og plantar trjám á jörðinni sinni til að kolefnisjafna bílaflota heimilisins. Hún á þrjú börn, Elvar, Auði og Elínborgu, sem eru sannkallaðir sólargeislar hvert með sínu sniði.