Starfsmannalisti

mynd: Björn Skúlason

Björn Skúlason

  • Starfsheiti: Ráðgjafi
  • Netfang: bjorn at audur.is
Björn hóf störf hjá Auði sumarið 2008. Hann starfaði áður í mannauðsmálum og sem viðskiptastjóri í eignastýringu einstaklinga hjá Glitni. Björn átti og rak markaðsfyrirtækið Birtu og starfaði þar áður á fyrirtækjasviði Tryggingarmiðstöðvarinnar.

Björn er viðskiptafræðingur frá LaSalle í Bandaríkjunum og lauk meistaragráðu í stjórnunarsálfræði frá Essex University í Bretlandi.

Fjölhæfni einkennir þennan kraftmikla mann hann er hæfileikaríkur íþróttamaður en það eru fáar íþróttagreinar sem Björn hefur ekki stundað. Á yngri árum var það knattspyrnan sem átti hug hans allan og spilaði Björn í úrvalsdeildinni í mörg ár með Grindavík og eitt ár með KR. Björn er mikill matgæðingur og veitist létt að töfra fram gómsæta rétti. Hann er ákaflega mikill fjölskyldumaður og vinnur hörðum höndum við það að aðskilja einkalífið frá vinnunni, en það er alls ekki svo auðvelt. Hann á tvö börn Tómas Bjart (7 ára) og Auði Ínu (5 ára). Björn getur gengið um á höndum og telst það vera einn af hans bestu “gagnslausu hæfileikum”.

 



Tungumál



audur_tomas
Óháð staða, áhættumeðvitund, gagnsæi og góð ávöxtun
Þetta vefsvæði byggir á Eplica