Starfsmannalisti

gullab

Guðlaug Björk Karlsdóttir

Guðlaug Björk hóf störf hjá Auði sumarið 2008. Hún starfaði á árunum 2002 til 2008 sem sjóðsstjóri hjá rekstrarfélagi Kaupþings hf. Þar gengdi hún fyrst starfi sjóðsstjóra erlendra hlutabréfasjóða og því næst stofnaði hún og stýrði fasteignasjóði Kaupþings og síðar stofnaði hún og stýrði peningamarkaðssjóðum Kaupþings í erlendum myntum. Með námi starfaði Guðlaug við uppgjör og endurskoðun hjá Deloitte hf. auk þess sem hún sinnti dæmatímakennslu við Háskóla Íslands.

Guðlaug útskrifaðist sem viðskiptafræðngur (B.Sc.) frá Háskóla Íslands árið 2002 og lauk prófi í verðbréfaviðskiptum árið 2008.

Guðlaug hefur alla tíð unnið mikið og því fær fjölskyldan nánast allan hennar frítima, enda á hún tvö frábær lítil börn, þau Karl Ísak og Sigrúnu Maríu. Garðyrkja hefur þó átt vaxandi vinsældum að fagna hjá Guðlaugu, eftir að hafa að mestu sigrast á skordýrafælni finnur hún þar ánægju og innri ró. Líkamsrækt hefur að jafnaði átt fastan sess í lífi hennar og hún hefur ómælda ánægju af því að boða til mannfagnaða og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

 



Tungumál



innside_banners_brynja
Langtímaárangur er lykilatrið í fjárfestingum
Þetta vefsvæði byggir á Eplica