Starfsmannalisti

svala-80

Svala Guðjónsdóttir

  • Starfsheiti: Bókhald
  • Netfang: svala at audur.is
Svala hóf störf hjá Auði í árslok 2008. Hún hefur áratuga reynslu af bókhalds- og skrifstofustörfum. Hún hefur meðal annars starfað við skirfstofustjórn, bókhald og innflutning hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga, Epal hf, Hvítlist hf, Jóhanni Ólafssyni & Co, og síðastliðin ár hjá Phoenix fjárfestingum ehf og Laugarnesi – fasteignafélagi ehf.

Svala hlaut árið 2005 diplómu fjármálaráðuneytisins sem viðurkenndur bókari.

Þó að of fáar stundir hafi gefist til tómstunda síðustu árin eru það fyrst og fremst fjölskyldan, ekki síst englarnir litlu, Bjartur og Skírnir (dóttursynir), sem eiga hug og hjarta Svölu. Fjallgöngur og önnur útivist eru á toppnum hjá henni, en einnig afslöppun með góða sögubók sem og ferðalög til annarra landa þar sem upplifa má menningu og mannlíf annarra þjóða.
 



Tungumál




innside_banners_hilmar
Við leggjum áherslu á gagnsæi og gott upplýsingaflæði
Þetta vefsvæði byggir á Eplica