Starfsmannalisti

Mynd_lara

Lára J. Björnsdóttir

  • Starfsheiti: Ráðgjafi
  • Netfang: lara at audur.is

Lára hóf störf hjá Auði í ársbyrjun 2009. Hún hefur margra ára reynslu af íslenskum fjármálamarkaði allt frá því hún hóf störf hjá hjá Landsbanka Íslands sem gjaldkeri og aðalféhirðir 1995. Næst tók hún við gerð starfsmannahandbókar og greiningu vinnuferla hjá Landsbréfum og sérhæfði sig í fjármálaráðgjöf til einstaklinga og einkabankaþjónustu fyrir hönd bankans.

Lára útskrifaðist af frumgreinadeild Viðskiptaháskólans á Bifröst 1995 og sem rekstrarfræðingur frá sama háskóla 1997. Lára er í fjarnámi í viðskiptafræði.

Þegar tími er kominn til að stimpla sig út einbeitir Lára sér að fjölskyldunni. Hún á tvö falleg börn, Ásdísi Rán og Kjartan Pál sem eru miklir snillingar. Hún er Ólsari í húð og hár og fer reglulega vestur til að hlaða batteríin með fjölskyldunni. Þegar tími gefst til stelst Lára svo í stangveiði, hendist um á snjósleða eða slakar á og nýtur náttúrunnar.

 



Tungumál



innside_banners_brynja
Langtímaárangur er lykilatrið í fjárfestingum
Þetta vefsvæði byggir á Eplica