Beint í leiðarkerfi vefsins.
Baldur Már hóf störf hjá Auði í ársbyrjun 2009. Hann hefur mikla reynslu af fjármálageiranum þrátt fyrir ungan aldur. Hann hóf starfsferil sinn hjá Íslandsbanka-FBA árið 2000 þar sem hann starfaði við greiningu á fjárfestingartækifærum í nýsköpunarfyrirtækjum. Eftir viðkomu í viðskiptaþróun bankans fór hann árið 2003 að vinna að fyrstu fjárfestingum bankans í skuldsettri fjármögnun í N-Evrópu ásamt því að byggja upp viðskiptasambönd við erlenda banka. Sumarið 2005 lagði hann ásamt fjölskyldu sinni land undir fót og flutti til Kaupmannahafnar þar sem hann vann áfram fyrir Glitni, við að fjárfesta í norrænum fyrirtækjum. Baldri leiddist ekki dvölin erlendis og ákvað að sækja enn lengra. Hann pakkaði því saman og dró fjölskylduna með sér til New York í upphafi árs 2008 þar sem hann starfaði við fjárfestingar á sviði sjávarútvegs og jarðvarma í Bandaríkjunum og Kanada.
Baldur er véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og löggiltur verðbréfamiðlari.
Baldur hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja á Norðurlöndunum.
Baldur er mikill íþróttamaður og ofurhugi. Hann er fyrrum landsliðsmaður í sundi, hleypur maraþon, hjólar talsvert og er núna að reyna blanda þessum greinum saman með keppni í þríþraut. Hann er duglegur að flækjast um landið með eiginkonunni og börnunum tveimur, Höllu Margréti og Kára Birni og skilur sjaldan ljósmyndavélina eftir heima.