Beint í leiðarkerfi vefsins.
Magnús hóf störf hjá Auði vorið 2009. Hann starfaði áður sem sérfræðingur í Greiningardeild Kaupþings þar sem hann vann að greiningu og mati á þróun fjármagnsmarkaðari. Einnig tók hann þátt í greiningu á fyrirtækjum á markaði, skrifaði greinar og stóð að fræðslu.
Magnús útskrifaðist úr viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík árið 2006. Hann var einnig við nám í University of the Incarnate Word í Texas þar sem hann lærði viðskiptafræði. Hann útskrifaðist með mastersgráðu í fjárfestingarstjórnun úr Háskólanum í Reykjavík árið 2008.
Magnús er duglegur að slappa af og stunda áhugamál sín. Hann veit fátt skemmtilegara en að spila golf með vinum og fjölskyldu og ferðast gjarnan landshluta á milli með golfpokann í eftirdragi. Hann hefur einnig mikinn áhuga á fótbolta enda fyrrverandi liðsmaður unglingalandsliðsins. Í dag lætur hann sér nægja að standa á áhorfendapöllunum og hvetja áfram litlu systur sína sem er ein efnilegasta knattspyrnukona landsins.