Starfsmannalisti

sassa_april-40

Svanhildur Sigurðardóttir

  • Starfsheiti: Samskipti og skrifstofustjórn - í fæðingarorlofi
  • Netfang: svanhildur at audur.is
Svanhildur hóf störf hjá Auði vorið 2009, fyrst sem viðskiptatengill hjá FramtíðarAuði og síðar á rekstrarsviði. Hún rak eigið fyrirtæki og hönnunarverkstæði í Kaupmannahöfn á árunum 2006-2008. Þá hefur hún víðtæka reynslu af þjónustu- og ráðgjafarstörfum, m.a. hjá Íslandssíma auk þess sem hún starfaði í tískufatabransanum í Reykjavík um árabil.

Svanhildur lauk BA námi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 2005.

Utan vinnutímans flýgur tíminn hratt hjá Svanhildi þar sem hún nýtur þess að skoða nýjar slóðir með fjölskyldunni, með tjaldið í farteskinu. Einnig hefur Svanhildur rennt sér á snjóbretti í 15 ár og hefur ekkert hugsað sér að gefa það upp á bátinn þó hún sé að eigin sögn farin að fara allt of varlega í brekkunum eftir að hún eignaðist börnin sín tvö Höllu og Kára.
 



Tungumál



innside_banners_halla
Við viljum að konur fari fyrir fé
Þetta vefsvæði byggir á Eplica