Starfsmannalisti
Guðrún B. Jónsdóttir
- Starfsheiti: Bakvinnsla
- Netfang: gudrun at audur.is
Guðrún Bjarnveig hóf störf hjá Auði vorið 2009. Hún starfaði á árunum 2007-2009 sem yfirmaður bakvinnslu hjá Straumi og hefur að baki langa reynslu af bakvinnslustörfum bæði hjá Straumi, Íslandsbanka og FBA. Þá hefur hún starfað við margvísleg bankastörf meðal annars hjá Landsbankanum og Búnaðarbankanum.
Guðrún hefur mikið yndi af útilegum og hverskonar útivist og hreyfingu. Hún er mikil fjölskyldumanneskja og er einn þrautreyndasti „caddy“ á Íslandi eftir að hafa um árabil liðsinnt sonum sínum, þeim Andra Jóni og Hjalta Steinari í golfíþróttinni. Þessu til viðbótar á hún ekki í nokkrum vandræðum með að taka að sér setu í starfsmannfélögum sem hún gerir með glæsibrag.