María hóf störf hjá Auði haustið 2007. Hún hefur unnið í fjármálageiranum síðastliðin 10 ár, og hefur aflað sér mikillar reynslu í rekstri fjármálastofnana svo sem á sviði bakvinnslu, vörslu, bókhalds, upplýsingatækni og alþjóðlegra reikningsskila. María starfaði á árum áður hjá endurskoðunarstofunni Coopers & Lybrand á Íslandi og í Danmörku. Hún var fjármálastjóri hjá Landhelgisgæslu Íslands um nokkura ára skeið og fór þaðan til Kaupþings þar sem hún starfaði á árunum 1997-2007.
María er löggiltur endurskoðandi og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.
María hefur verið í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins, Sparisjóðs Kaupþings, Fasteignafélagsins Eikar og varamaður í stjórn Kaupþings banka.
María er í essinu sínu og klæjar í lófana þegar kemur að því að stemma af, rekja villur eða leysa reikningsskilamál. En Vestfirðingurinn nýtur sín ekki síður þegar hún er með fjölskyldunni í Jökulfjörðunum við frumstæðar aðstæður, á skíðum með börnunum eða bara heima í stofu að prjóna með vinkonum sínum. Stolt Maríu eru dæturnar tvær, Júlíanna og Aníta, sem eiga í henni hvert bein.