Bjarki hóf störf hjá Auði haustið 2009. Hanni hefur mikla reynslu úr fjármálageiranum, hann hefur m.a. víðtæka reynslu af verðmötum fyrirtækja og fasteigna og vann að mörgum af stærstu fjárfestingarbankaverkefnum Landsbankans síðustu ár. Bjarki starfaði hjá Landsbankanum frá 2002-2008, fyrst í greiningardeild og svo í fyrirtækjaráðgjöf. Árið 2008 stofnaði hann ráðgjafarfyrirtækið Strada Partners.
Bjarki er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og löggiltur verðbréfamiðlari.
Undanfarin ár hefur Bjarki gjarnan mætt sérlega kátur í vinnuna á mánudagsmorgnum enda hefur hans lið í enska boltanum, Manchester United, yfirleitt staðið sig vel í leik helgarinnar honum til mikillar ánægju. Bjarki er líka áhugamaður um torfærumótorhjól og notar frítímann iðulega til að geysast um á mótórhjólinu eða til að spila fótbolta, fikta við golf ofl. Bjarki og eiginkonan, Imma, eru einnig dugleg að njóta útivistar með syninum Orra hvort sem er í borginni eða úti á landi.