Tómas Gunnar hóf störf hjá Auði í árslok 2009. Hann hefur áralanga starfsreynslu af fjármálaráðgjöf til einstaklinga og starfaði áður sem sérfræðingur á eignastýringarsviði Landsbankans og sem ráðgjafi í lífeyrismálum. Þá hefur hann haldið fjölda námskeiða um lífeyrissparnað, verðbréf og ráðgjöf. Á árum áður starfaði Tómas við ritstjórn og sem lausapenni hjá Mannlífi, DV og Morgunblaðinu. Að auki hefur hann skrifað nokkrar bækur.
Tómas lauk B.A. námi í íslensku við Háskóla Íslands árið 2000 og námi í löggiltri verðbréfamiðlun árið 2001. Þá hefur Tómas einnig sótt nám í gerð kvikmyndahandrita við New York Film Academy.
Skriftir, kvikmyndagerð, ljósmyndun og íþróttir eiga hug Tómasar allan í frístundum en ekkert er þó betra en að vera í faðmi fjölskyldunnar en Tómas og kona hans Anna Margrét eiga soninn Brynjar Berg.