Starfsmannalisti
Heiða Kristín Víðisdóttir
- Starfsheiti: Bakvinnsla
- Netfang: heida at audur.is
Heiða Kristín hóf störf hjá Auði í maí 2010. Heiða starfaði í Sparisjóðabanka Íslands hf. í erlendri greiðslumiðlun í 6 ár þar sem hún sá um erlendar greiðslur, afstemmingar og samskipti við viðskiptavini um allan heim. Einnig vann hún innan Sparisjóðabankans í uppgjöri afleiða og verðbréfaviðskiptum í 3 ár og sá þar um ýmiss konar uppgjör og verðbréfalánaviðskipti.
Heiða hefur sótt ýmiss konar námskeið í fjármálaheiminum, þar á meðal Sparnám sem er sérsniðið nám í samvinnu í Háskóla Íslands þar sem helstu fög voru alþjóðaviðskipti, rekstrarhagfræði og réttindi og skyldur fjármálafyrirtækja.
Heiða Kristín er uppalin á Ólafsfirði. Hún stundaði knattspyrnu af miklum móð alla sína æsku og nýtur þess að fara norður fyrir heiðar með fjölskyldunni í frístundum. Heiða á einn son, Loga Makan fæddan 2009, með sambýlismanni sínum og veit fjölskyldan ekkert betra en að njóta þess að vera saman.