Starfsmannalisti
Guðbjörg Hanna Gylfadóttir
- Starfsheiti: Bókhald
- Netfang: gudbjorg at audur.is
Guðbjörg hóf störf hjá Auði í maí 2010. Guðbjörg starfaði um 16 ára skeið hjá Nýsi þar sem hún kom að ýmsum verkefnum svo sem bókhaldi, uppgjöri og áætlanagerð. Síðustu árin var Guðbjörg skrifstofustjóri Nýsis og sat í stjórn félagsins. Á árum áður starfaði hún við ýmis störf hjá Landsbanka Íslands.
Guðbjörg er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá University of Alabama.
Guðbjörg er Skagstrendingur og kynntist ung grunnatvinnuvegum þegar hún starfaði við fiskvinnslu á Skagaströnd. Guðbjörg er mikil íþróttakona og var í landsliði Íslands í frjálsum íþróttum á árunum 1986-1992. Guðbjörg er einnnig tónelsk og hefur sungið með Kvennakór Reykjavíkur síðastliðin tíu ár.