Starfsmannalisti

tomas_heimasida

Tómas Þór Eiríksson

  • Starfsheiti: Sérfræðingur
  • Netfang: tomase at audur.is
Tómas hóf störf hjá Auði Capital sumarið 2010. Hann starfaði áður sem fjármálastjóri hjá byggingafyrirtæki á norðurlandi í fjögur ár og síðan í 4 ár hjá fjármálafyrirtæki í fasteignatengdum verkefnum.

Tómas er með B.Sc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri ásamt því að hafa verið í skiptinámi í Mazatlan í Mexico, hluta af náminu.

Tómas er Grindvíkingur og býr í úthverfi Grindavíkur, á Völlunum í Hafnarfirði. Hann ásamt Sonju konunni sinni eru vellauðug af börnum, því er líf og fjör á heimilinu.

Helstu áhugmál hans fyrir utan fjölskylduna er hreyfing og útivera. Tómas hefur hlaupið bæði heilt maraþon og Laugavegsmaraþonið þar sem áherslan var á að komast í mark. Á veturnar hefur hann mikinn áhuga að renna sér á snjóbretti en á sumrin fer helsti tíminn í ferðalög með fjölskyldunni um Ísland.
 



Tungumál



innside_banners_halla
Við viljum að konur fari fyrir fé
Þetta vefsvæði byggir á Eplica