Starfsmannalisti
Sóley Guðmundsdóttir
- Starfsheiti: Aðstoðarkona framkvæmdastjórnar
- Netfang: soley at audur.is
Sóley hóf störf hjá Auði haust 2010. Hún starfaði áður sem launafulltrúi hjá Olís hf.
Hún var skrifstofustjóri um nokkurra ára skeið og hefur góða reynslu af störfum tengdum tækniþjónustu og tölvum.
Áhugamál hennar eru úr allt annarri átt. Hún eyðir gjarnan frítímanum í að gera upp gömul húsgögn og eyðir löngum stundum í Góða hirðinum við að finna rétta ,,stykkið“.
Þegar hún er ekki með nefið á kafi í málningardós nýtur hún þess að eyða tíma með fjölskyldunni en hún er úr fjögurra systkina hópi sem hittist mjög oft til að spila eða borða saman með mökum og börnum.