Starfsmannalisti

arna_nytt

Arna Harðardóttir

  • Starfsheiti: Framkvæmdastjóri
  • Netfang: arna at audur.is

Arna hóf störf sem framkvæmdastjóri fagfjárfestasjóða í árslok 2007. Hún var framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Calidris frá 2003 til 2006 og fjármálastjóri Viðskiptaráðs Íslands frá janúar 2007. Áður starfaði hún í eigin rekstri og í 9 ár á verðbréfamarkaði sem deildarstjóri einstaklingsviðskipta og sjóðastýringar hjá Landsbankanum/Landsbréfum.

Arna hefur MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, BA próf í hagfræði frá háskólanum í Reading í Englandi og er löggiltur verðbréfamiðlari.

Arna er stjórnarformaður í fyrirtækjunum ELM Design, Maður lifandi, Bio vörur og Yggdrasill. Auk þess situr hún í stjórn Securitas, TALs og Gagnavörslunnar.

Arna er mikil baráttukona og er formaður samtakanna Betri byggð á Kársnesi sem vinna að bættum skipulags- og umhverfismálum í Vesturbæ Kópavogs. Arna nýtur þess að verja tíma með fjölskyldunni og í góðra vina hópi, spila bridds og lesa góðar bækur. Hún á tvö börn, Grétu og Viktor.

  • Sími: 585 6500
 



Tungumál




innside_banners_gitta
Við trúum á snjallar, einfaldar og skynsamlegar lausnir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica