Starfsmannalisti

Mynd; Margit Robertet

Margit Robertet

  • Starfsheiti: Framkvæmdastjóri
  • Netfang: margit at audur.is

Margit hóf störf sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar í árslok 2008. Margit hefur starfað í fjármálageiranum í 20 ár, lengst af utan Íslands. Hún sneri heim árið 2005 sem fjárfestingastjóri hjá Burðarási og var síðast framkvæmdastjóri lánasviðs Straums Burðaráss Fjárfestingarbanka þar sem hún leiddi uppbyggingu og útrás bankans á því sviði. Margit hóf feril sinn sem greinir hjá BZW, fjárfestingabankaarmi Barclays, en flutti sig síðar til Credit Suisse í Paris þar sem hún starfaði við fyrirtækjaráðgjöf á árunum 1996 til 2005.

Margit er viðskiptafræðingur, með MBA gráðu frá Rotterdam School of Management, próf frá FSA í London og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Margit hefur víðtæka reynslu af verðlagningu á og samningagerð í tengslum við kaup og sölu á fyrirtækjum, hluta- og skuldabréfaútboðum sem og fjármögnun á skuldsettum yfirtökum.

Eftir langa dvöl í Frakklandi er Margit orðin áhugamanneskja um allt franskt, hvort sem um ræðir franska súkkulaðiköku eða eðalvín. Hún er mikil skíðakona, enda hálf norsk, og missir aldrei af tækifæri til að skella sér í fjöllin á Íslandi, Noregi eða í Evrópu. Hún á tvö börn, Manon og Eliot, og saman eiga þau hundinn Astro.

 



Tungumál




innside_banners_hekla
Við leggjum áherslu á að segja hlutina eins og þeir eru
Þetta vefsvæði byggir á Eplica