Tanya hóf störf hjá Auði í árslok 2007. Hún starfaði frá árinu 1999 sem lögfræðingur Íslenskrar erfðagreiningar. Á starfsárum sínum hjá félaginu tók hún þáttt í fjármögnum félagsins, bar ábyrgð á útboðs- og skráningarlýsingum, sem og á eftirfylgni við reglur félagsins, kaupréttaráætlun og hluthafaskrá félagsins. Síðustu árin var hún framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs og einnig ritari stjórnar félagsins. Áður en hún hóf störf hjá Íslenskri erfðagreiningu var hún meðeigandi í PricewaterhouseCoopers og sérhæfði sig í skatta- og hlutafélagalögum.
Tanya er lögfræðingur frá Háskóla Íslands.
Tanya er stjórnarmaður í Carbon Recycling ehf.
Tanya fæddist í Rússlandi og fluttist til Íslands sjö ára gömul. Hún hefur alla tíð haft áhuga á tungumálum, alþjóðamálum og ferðalögum og hefur langa reynslu af alþjóðasamskiptum, sem byrjuðu á heimilinu, héldu áfram á skiptinemaári í Belgíu og síðan í viðskiptalífinu bæði í Rússlandi og Bandaríkjunum. Meðal áhugamála hennar eru alþjóðaviðskipti, ballett, tónlist, myndlist, lestur, hlaup og að heimsækja ýmsar fallegar borgir, meðal annars Pétursborg og París.