Fréttir & viðburðir

27 Jan 2010

FRÆ ÁRSINS 2010 afhent

FRÆ ÁRSINS 2010 var afhent við hátíðlega athöfn í Háskólanum í Reykjavík í dag. 

Niðurstaða dómnefndar var að velja tvö verkefni sem deila með sér vinningnum.

Hugmyndin "ANDBLÆR " -Örþunnt loftræstikerfi fyrir byggingar snýst um mikilvæga tæknilega nýjung í loftræstikerfum fyrir byggingar, þar sem ný tegund af viftum er undirstaða loftræstikerfa sem eru miklu mun minni í smíðum en núverandi kerfi og um leið sparneytnari og sveigjanlegri. 

Hugmyndin "Nuevo Vehicles" snýst um nýja tækni í hönnun undirvagna fyrir bifreiðar, þar sem drifkerfi og stýrikerfi eru mun sveigjanlegri en á bifreiðum í dag. Bæði þessi verkefni eru metnaðarfullar tækninýjungar og geta leitt til verulegra umbóta í samfélaginu, sér í lagi varðandi orkunotkun, kostnað og umhverfi.

Háskólinn í Reykjavík, í samvinnu við KLAK – nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, Hugmyndahús háskólanna og Auði Capital, stendur fyrir samkeppninni. Verðlaunafé nemur einni milljón kóna, auk þess fá vinningshafar vinnuaðstöðu og niðurfelld skólagjöld í Viðskiptasmiðju Klaksins. Með þessu fá frumkvöðlar ekki aðeins fjárstuðning til að vinna að hugmynd sinni, heldur einnig það umhverfi, þá þjálfun og þann stuðning sem þarf til að fullgera viðskiptaáætlun og koma á fót starfandi sprotafyrirtæki.

Sjá nánar

Senda síðu




Tungumál



innside_banners_brynja
Langtímaárangur er lykilatrið í fjárfestingum
Þetta vefsvæði byggir á Eplica